Færsluflokkur: Dægurmál
22.2.2007 | 22:48
Þetta...
...minnir mig á Innrásina frá Mars. Þar var það minnsta lífsformið, bakteríur, sem vann bug á geimverunum en ekkert stórskotalið vann á þeim.
Hérna eru það bændurnir, litlu mennirnir, sem ná að hrekja burtu klámhundana. Stórskotalið þingmanna, lögreglu og annarra yfirvalda fékk ekkert að gert.
Annars er þetta auðvitað út í hött að hefta aðgang túrista svona að landinu. Spurning hvort samtök aðila í hótel- og veitingarekstri móti einhverja stefnu í því hvaða ferðamenn eru velkomnir hingað og hverjir ekki.
![]() |
Hætt við klámráðstefnu hér á landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.2.2007 | 22:46
Stundum...
...þegar ég er í bílnum þá velti ég fyrir mér ýmsum hlutum... Ég eyði miklum tíma í akstur á dag og þarf þess vegna að velta fyrir mér ýmsu misgáfulegu. Ég heyrði viðtal við einhvern íslenskumann um daginn þar sem var verið að tala um að íslenska titla á bíómyndum og sjónvarpsþáttum.
Í framhaldinu fór ég að spekúlera í hvernig maðurinn myndi t.d. þýða þátt eins og "Queer Eye For The Straight Guy". Dettur ykkur eitthvað í hug? Eftir þó nokkra umhugsun hjá mér gat ég ekki gert upp á milli nafnanna "Hommar í heimsókn" eða "Öfugar innréttingar". Er m.a.s. að spá í að selja Skjá 1 einkarétt á þessum nöfnum.
Svo var brandari síðustu viku konan sem kvartaði yfir morgunsjónvarpinu á Stöð 2. Bítið er hætt og komið barnaefni í staðinn - og þá er þvílíkt stríð fyrir konuna að koma börnunum í skólann.
Ég spyr; Er það Stöð 2 að kenna, eða konunni sjálfri?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.2.2007 | 20:52
Ég...
...er mættur. Helgin var annarlega annasöm og ég hafði lítinn tíma til að blogga, þrátt fyrir að sitja við tölvu mest alla helgina. Frá því ég dritaði síðast hef ég (ekki endilega í þessari röð)...
- Brotið um 80 blaðsíðna ársskýrslu HSK.
- Farið út að borða á Hótel Geysi þar sem ungkokkalandsliðið var á æfingu.
- Sleppt því að horfa á alla fótboltaleiki í sjónvarpinu.
- Skroppið í Kópavoginn til að sjá Árborgu tapa fyrir Ými.
- Verið góður við konuna mína.
- Ekið fullum manni heim.
- Misst af Eurovision.
- Grillað svínakjöt.
- Hlustað á hljómsveitina Ég.
- Stundað óbeinar reykingar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
17.2.2007 | 11:18
Eigum...
![]() |
Ökumaður í annarlegu ástandi skapaði stórhættu á götum Reykjavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.2.2007 | 21:53
Þetta...
...klámþing hlýtur að æsa upp allar þessar feminísku beljur sem stunda það að blogga. Rakst á mjög gott komment frá einhverjum Valda á einhverri feministasíðu (sem ég ætla ekki að gera þann greiða að birta slóðina á). Niðurlagið af kommentinu er svona: "...þið feministarnir eru svo endalaust vitlausir og fullar af eigin skít og athygglissýki það er sjúkt ... og já mikklu sjúkara en klám eða vændi."
Annars hlýtur að vera að Klámþing sé dótturfélag Kaupþings.
![]() |
Klámþing verður haldið hér á landi í næsta mánuði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
15.2.2007 | 00:46
Kastljósið...

Ragnhildur [við Freysa (sem var líklega edrú í kvöld)]: "...þú ert eiginlega bara bjargvætturinn núna, nú bara vonum við að enginn setjist undir stýri eftir að vera búinn að fá sér."
Já, Ragnhildur það eru allar líkur á því að ölvunarakstur leggist af í landinu eftir þessa umfjöllun Kastljóssins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.2.2007 | 01:04
Ótrúlega...
...ófagmannleg og bjánaleg umfjöllun um ölvunarakstur í Kastljósinu í kvöld. Fjallað var um málið eins og hvert annað léttmeti og dagskrárgerðarmennirnir voru bara léttir á því - brostu og hlógu að fyllirísrausinu í Freysa. Mér stökk ekki bros. Þetta var örugglega ekki sú forvörn sem þau lögðu upp með.
Freysi valdi það að gera sig að algjöru fífli frammi fyrir alþjóð (veit ekki hvort hann er það í raun). Hann var orðinn svo fullur að hann gat bara talað ensku, og þá átti að taka viðtal við hann í sófanum. Hann sat þar eins og hann væri þroskaheftur með Einar Guðmundsson, forvarnafulltrúa Sjóvá við hliðina á sér. Ótrúlegt að reynslubolti á forvarnasviði, eins og Einar er, skuli hafa tekið þátt í þessu gríni. Og Árni Friðleifsson... ég hef ekki séð hann svona hressan síðan Víkingar urðu Íslandsmeistarar í handbolta á sínum tíma...
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.2.2007 | 22:50
Enn...
...eitt árið ákveður Sjónvarpið að láta Ólaf H. Torfason eyðileggja upptökuna frá BAFTA verðlaununum. Maðurinn er svo öfga málglaður að hann þarf endalaust að skjóta inn í "þýðingum" á því sem fólkið er að segja á sviðinu og talar þar með ofan í það. Ég spyr bara hvernig í ósköpunum maður á að geta notið þessarar útsendingar með hann blaðrandi yfir enskunni? Ég er amk búinn að slökkva á sjónvarpinu.
![]() |
Mirren og Whitaker valin bestu leikararnir á BAFTA-hátíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.2.2007 | 22:40
Brandara...
...föstudagsins síðasta sagði Magnús Ásgeirsson hjá Essó í viðtali við Reykjvík síðdegis. Hann var spurður að því hvort það væru of margar bensínstöðvar á Íslandi og hvort það gæti lækkað bensínverð að fækka þeim. Hann vildi nú ekki viðurkenna það og sagði ástæðuna fyrir fjöldanum vera sú gríðarlega samkeppni sem sé á sviði olíusölu. Hahahahaha...
Geta þeir ekki bara haft samráð um að fækka stöðvunum?
![]() |
Máli gegn olíuforstjórum vísað frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.2.2007 | 21:18
Skellti...
...mér í leikhús á Selfossi í gærkvöldi með Badda Ponna. Sáum Hnerrann sem er safn stuttra gamanþátta eftir Anton Tsjekov. Rússneskur húmor er greinilega mjög teygjanlegt hugtak en í sýningunni eru fínir sprettir og leikararnir standa sig allir með prýði. Vert að sjá.
Eftir leikhús kíktum við á Krúsina og drukkum kannski aðeins of marga bjóra. Þeim fjölgaði allavega eftir því sem leið á kvöldið og á endanum vorum við komnir á Monkís-gigg á Pakkhúsinu. Það var sérdeilis þægileg skemmtun þó að mannfjöldinn hafi ekki verið yfirþyrmandi. Baldvin stökk reyndar snemma heim enda þurfti hann að mæta eldsnemma í íþróttaskóla barnanna - hvar hann nemur þrístökk án atrennu.
Jæja... rólegur dagur í dag. Liverpool sökkaði og ég át brauð með sardínum. DVD í kvöld.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)