Færsluflokkur: Dægurmál

Geiiiiiisp...

...er leikur í kvöld?

NPX%20Liverpool%20Train%2005
Gerrard sauðslakur á æfingu í gær...


Britney...

422679A...er komin í fréttirnar enn á ný. Nú segir slúðurpressan að hún hafi reynt að hengja sig með rúmfötunum sínum á meðferðarheimilinu sem hún dvelur á. Ekki nóg með það heldur krotaði hún "666" á ennið á sér og hljóp síðan um öskrandi að hún væri Andkristur. Athyglisvert.

Annars er komin ný vinnuvika og ef ég á að telja upp afrek helgarinnar þá eru þau þessi:

  1. Labbaði í slabbi.
  2. Borðaði humarsúpu.
  3. Fór á Hvolsvöll og í Hveragerði.
  4. Henti sjónvarpinu út um gluggann.
  5. Fór í afmæli.
  6. Horfði ekki á The Click.
  7. Skaut tappa úr flösku.
  8. Var með flösu.
  9. Las gamlan Mogga.
  10. Var í hlýrabol.

En varðandi Britney, þá má lesa um fleiri furðufugla í viðhangandi frétt.


mbl.is Jesús býr í Burnley
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ökum...

...varlega!
mbl.is Bílslys á Suðurlandsvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kóperaði...

422498A...eftirfarandi texta af Vísi: "...Tveir bílar rákust saman og sá þriðji nuddaðist utan þá rétt á eftir. Bílarnir sem rákust fyrst saman voru síðan fluttir í burtu með kranabíl þar sem þeir voru mikið skemmdir. Þriðja bílnum var keyrt í burtu...."

Hvað segja málfræðiáhugamenn um þennan ágæta texta?

Jæja... ætli ég fari ekki að horfa á Family Guy með Jóa Seagull...

GK out


mbl.is Harður árekstur á mótum Hringbrautar og Njarðargötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara...

devil-prada-th...af því að Hlynur Bárðar tók upp þráðinn hér að neðan varðandi þýðingar á erlendum sjónvarpsþátta eða kvikmyndatitlum... Hef heyrt tvær þýðingar á titlinum The Devil Wears Prada. Annað var Djöfullinn á dönskum skóm en hinu er ég búinn að gleyma. Mér finnst að þegar menn eru að þýða þessa titla þá sé ekki nóg að snúa þeim bara yfir á íslensku heldur þurfa þeir að vera trúir upprunalega titlinum líka. Ég myndi láta þessa mynd heita Kölski klæðist Prada. Ekkert að því...

Annars fékk ég óvænt símtal í morgun frá karlmanni sem vildi fá mig á stefnumót...


Keypti...

...mér Egils Orku og Snickers í dag. Bara upp á grínið. Báðar vörurnar höfðu hríðlækkað, þannig að núna kostar Orkan svipað og hún kostaði fyrir áramót - eftir að hafa snarhækkað fyrir stuttu...

Rop...
mbl.is Söluskáli KHB lækkaði ekki verð í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eignaðist...

...nýjan bloggvin í gærkvöldi, þegar Tommi Þórodds kíkti í heimsókn. Tommi er toppnáungi þó að við séum ósammála um veigamikil atriði eins og enska boltann og aðferðafræði í pólitík.

Þar fyrir utan hef ég ekkert skemmtilegt að segja... Smile

Góðar stundir...


Rakst...

draw...á nokkuð skemmtilegt próf á bloggsíðunni hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum. Þarna getur maður komið sér fyrir á hinu pólitíska landakorti á ákaflega einfaldan hátt. Og það sem kom mér mest á óvart er að prófið virðist hafa tiltölulega rétt fyrir sér.
Niðurstaðan mín er hérna hægra megin.

Þið getið prófað hérna...


Ég...

...er fámáll þessa dagana.

Tungubrjótur...

...í hádegisfréttum RÚV í dag: "Auðgun Írana á úrani í iðnaðarskyni"

Þess má geta að þulurinn komst vel frá þessari skemmtilegu setningu.

Góða helgi...


mbl.is Ahmadinejad segir eftirgjöf einungis auka kröfur óvina Írans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband