Færsluflokkur: Dægurmál
4.4.2007 | 14:52
Bjó...
...til þetta skemmtilega barmmerki í dag. Fer vel á stórum börmum, sem og litlum ;-)

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.4.2007 | 14:16
Ég...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.3.2007 | 11:34
Lesiði...
...fréttina og segið mér hvað umboðsmaður Riise heitir! Einar Bárðarson!!!
Já, hann kemur víða við...
![]() |
John Arne Riise lýstur gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
30.3.2007 | 00:02
Var...
...einmitt að koma úr bíó þar sem ég sá "The Number 23". Hún er alls ekki svo afleit og með aðeins þéttara handriti hefði hún verið stórgóð. Carrey er að sjálfsögðu misskilinn snillingur sem ber þann stimpil að vera með fílagang og verður þess vegna aldrei tekinn alvarlega sem leikari. Sem er synd. Hann er ágætur í þessari mynd og eins á hann góðan leik í The Majestic sem eflaust fáir hafa séð. Eternal Sunshine Of The Spotless Mind er líka mjög fín. Annars er ágætt að hann ætli að snúa sér að gríninu aftur. Carrey datt úr tísku fyrir nokkrum árum og menn eins og Ben Stiller, Will Ferrell og Frat Pakkið hafa átt grínið á hvíta tjaldinu síðustu árin.
Topp fimm Jim Carrey hjá mér:
1. Dumb & Dumber
2. Eternal Sunshine of the Spotless Mind
3. The Truman Show
4. Liar Liar
5. Earth Girls Are Easy
Pop Quiz: Vissir þú að Will Ferrell á sænska konu og sonur hans heitir Magnús Ferrell? (Ekki grín)
*** UPPFÆRT***
Föstudaginn 30. mars kl. 0:06. Sandvíkurtjaldurinn er lentur! Heyrði í honum út um gluggann!
![]() |
Jim Carrey snýr sér að gamanleik að nýju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.3.2007 | 12:26
Það...
...hefði verið skynsamlegra að senda gæsina til Jakobs. Hann gæti sko skikkað hana til svo að hún hætti að áreita börn. Ef allt annað bregst er hún örugglega mjög þæg þegar búið er að ofnbaka hana.
PS. Hesturinn frá því í gær var ekki dauður. Hann var staðinn upp þegar ég fór heim.
![]() |
Grágæsin tók sér far með rútunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.3.2007 | 10:17
Vaknaði...
...við þrastasöng í morgun. Er eitthvað þægilegra?
Sólin skein og í Ölfusinu var hestur í sólbaði (vona að hann hafi ekki verið dauður). Fleiri vorboðar eru t.d. framdekkin á vinnubílnum mínum eru búin að losa sig við flestalla naglana. Þeir liggja sjálfsagt á víð og dreif um Kambana. Annars er þetta síðasta vikan sem ég keyri þennan bíl í vinnuna því þann 1. apríl byrja ég í nýrri vinnu.
Einu sinni söng Bubbi: Ég vakna oftast þreyttur... Það á síst við á vorin.
27.3.2007 | 22:46
Haukar...
![]() |
Haukar og Keflavík sigruðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.3.2007 | 00:31
Minni...
...fólk á að lesa Safnaðartíðindi Þorlákshafnarprestakalls. Sérstaklega eigulegur pési sem ég hef verið að vinna að undanfarna klukkutíma... Áfram Jesú!
Helgin, já. Tíu hlutir sem ég gerði um helgina:
- Sá tjald.
- Heimsótti Kópavog.
- Vigtaði mig ekki.
- Var latur.
- Horfði á X-factor af innlifun (ekki)
- Borðaði snakk.
- Fór í opinbera heimsókn á Stokkseyri.
- Vann á laugardagskvöldi.
- Var í rigningu.
- Sá Baldvin drekka eplasnafs.
...já, maður kemur miklu í verk...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.3.2007 | 00:24
Ökum...
![]() |
Árekstur strætisvagns og fólksbíls í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.3.2007 | 01:15
Af...
![]() |
Bretaprinsar döðruðu drukknir á næturklúbbum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |