Færsluflokkur: Dægurmál
14.4.2007 | 18:06
Haukakonur...

![]() |
Haukar vörðu Íslandsmeistaratitilinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.4.2007 | 00:54
Mér...
...hefur aldrei þótt svíar sérstaklega svalir.
Mikið að gera á morgun, fer í Vík í Mýrdal, Félagslund og Iðu. Ef allt gengur upp. Verðum í bandi.
Ótrúlega margir leikir í enska á morgun sem maður vill sjá.
![]() |
Læsti dóttur sína inni í ísskáp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
12.4.2007 | 22:58
Er...
*UPPFÆRT kl. 23:28* Jæja, hún varð í 2. sæti...
kannski hefur hún ekki viljað sænga hjá dómnefndinni...
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
12.4.2007 | 20:43
Fór...
...til læknis í gær, sem er ekki í frásögur færandi. Er búinn að vera eitthvað slappur í lungunum síðan ég fékk lungnabólguna í desember. Hafði aldrei tíma til að leggjast almennilega í bælið og ná þessu úr mér. Ég er með eitthvað urg og surg í lungunum, sem kemur og fer, og ég hélt að ég væri kannski með einhvern asma...
En nei nei, læknirinn hlustaði mig og lét mig blása í einhverskonar púströr. Það er ekkert að mér - og ef það er eitthvað þá er það bara eitthvað dularfullt. Ég er semsagt bara aumingi með hor...
Púnkturinn með þessari sögu er að það pirrar mann að fara til læknis þegar ekkert er að manni...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.4.2007 | 22:23
Öll...
...á fætur nú! Ég held að ég hafi verið skotinn í henni þessari þegar ég var 12 ára. Ætli hún rauli ennþá Sólarsömbuna þegar vel liggur á henni.
Eiríkur Hauksson er þessa stundina að syngja um týndan Valentín á RÚV. Mér finnst að við ættum að flytja þetta lag á íslensku í Helsinki.
![]() |
Býður sig fram í framkvæmdastjórn Samfylkingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.4.2007 | 02:22
Um...
...helgina afrekaði ég þessa tíu hluti (helgi talin frá fimmtudegi til mánudags).
- Át naut á stöngli.
- Bölvaði Moggablogginu.
- Söng afmælissöng.
- Hvatti mann til að fara út að hlaupa á netasokkabuxum einum klæða.
- Hljóp á eftir manninum út í Nóatún (ég fullklæddur)
- Gladdist yfir enska boltanum (án þess að horfa á leik)
- Rataði í Grafarvoginum.
- Las á málverk.
- Vann (þó ekki í lottóinu)
- Andaði að mér tjöruhreinsi.
Málsháttur þessa árs: Móðir refsar barni sínu, en kyssir það að jafnaði á eftir refsingunni. Sælgætisgerðin Góa með uppeldisfræðina á hreinu. Prófaði að Gúgla málsháttinn. Það skilaði engri niðurstöðu. Þetta er sjálfsagt eitthvað sem pólverjarnir semja á kaffistofunni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
9.4.2007 | 11:58
Kærkomið...
...bloggfrí um páskahelgina. Það var reyndar ekki viljandi. Bloggið mitt lamaðist einhvern veginn þannig að allar færslur síðustu átta mánuði hurfu og ekkert var hægt að blogga. Eftir stóð færsla um mig og Leoncie, sem ruglaði marga í ríminu.
Ég fékk engar skýringar á þessu frá Mogganum, en nú hef ég endurheimt mitt stafræna heimili. Þið misstuð svo sem ekki af miklu, en til stóð að birta opinskáa greinargerð um 17 ára fermingarafmæli mitt en það var einmitt í gær. Sú frásögn verður að bíða betri tíma.
Ein fermingarveisla í dag, og svo að sökkva sér í vinnu...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.4.2007 | 01:09
Smellti...
Þarf líklega að fá einhvern svefn...
![]() |
Wilson og Hudson kærustupar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.4.2007 | 01:06
Litla...


Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.4.2007 | 22:44
Sóley...
...Sóley, mín von og trú...
Já, ekki laust við að maður hugsi til Sóleyjar Tómasdóttur og annarra öfgafeminista þegar maður fær þau tíðindi að Sandra Bullock sé á leið til landsins. Eins og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni er þessi kona hreinræktuð glyðra og það ætti að nægja til þess að Feministafélagið, ríkisstjórnin og Bændasamtökin komi í veg fyrir komu hennar. Sóley! Ég treysti á þig! (Aldrei áður hef ég reitt mig á feminista á þennan hátt).
Forsendur mínar eru reyndar aðrar. Hún má stripplast af öllum kröftum mín vegna. En þessi svokallaða "leik"kona hefur komið óorði á sína stétt sökum lélegrar frammistöðu í hverri einustu mynd sem hún hefur leikið í. Ég er fyrir löngu farinn að sniðganga myndir með Söndru en hef þó neyðst til að brenna augu mín þegar aðrir heimilismeðlimir hafa borið viðbjóðinn hennar hingað heim. Það eru aðeins þrjár myndir með henni sem ég get horft á og þið megið giska hvaða myndir það eru... það skal tekið fram að þetta eru myndir sem maður getur leyft sér að loka augunum og halda fyrir eyrun þegar hún er á skjánum, en aðrir leikarar halda myndunum á floti.
Hinar 38 myndirnar hennar má brenna á myndabrennu Betelsöfnuðarins í Vestmannaeyjum.
ÍSLAND Í NATÓ, SÖNDRU BURT!
![]() |
Sandra Bullock leikur í kvikmynd á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |