Færsluflokkur: Dægurmál

Ég...

...er viss um að Houdini er löngu sloppinn úr kistunni sinni. Situr undir pálmatré á Hawaii og sötrar kokteil með Elvis.

Annars er þetta helgi hinna miklu frestana. Ætlaði í leikhús í gærkvöldi; FRESTAÐ. Ætlaði á Bjartmar í kvöld; FRESTAÐ. Hvað næst?

GK out


mbl.is Hugsanlegt að Houdini verði grafinn upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlega...

Færðin er afar slæm á Holtavörðuheiði og hafa......mikil líkindi með Holtavörðuheiði og Svínahrauninu. Ef rýnt er í myndina þá má sjá að Litla kaffistofan hefur opnað útibú á Holtavörðuheiði, og í góðu skyggni þá má sjá alla leið til Reykjavíkur...


mbl.is Margir bílar utanvega á Holtavörðuheiði; heiðinni lokað um stundarsakir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki...

345713-1859724-458-238...bara að hann sé vanmetnasti varnarmaður í heimi, heldur er hann líka einn sá hógværasti. Carra er snillingur, betri en Terry og Ferdinand til samans. Verst fyrir Englendinga að McLaren er ekki að sjá það... Hvernig væri annars fyrir England að stilla bara upp þriggja manna vörn með Terry sem sweeper og Carra og Ferdinand til hliðanna?

Jæja, eins og öllum c ekki sama. Þetta er ekki fótboltablogg... :)


mbl.is Carragher bíður rólegur eftir miðvarðarstöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það...

...er bara fuck í hverri línu. Það er ekki að spyrja að orðbragðinu hjá skotunum. Hvað ætli pabbi segi um þetta?
mbl.is Ferguson hellti sér yfir fréttamann Sky Sports
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins...

423976A...og sjá má á myndinni þá lenti ég í því að þurfa að keyra í gegnum þetta veður sem var á heiðinni í morgun. "Lenti í því", segi ég og skrifa. Svo sannarlega fórnarlamb aðstæðna. Heiðin var galopin þegar ég lagði af stað í vinnuna í morgun og veðrið þar var frekar skítt. Þegar komið var í Svínahraunið fór veðrið að versna og ég hugsaði með mér hvern fjandann ég væri að keyra inní. Síðan snarversnaði veðrið á nokkrum mínútum og þegar ég var kominn að Litlu kaffistofunni var snarbrjálað rok og staurblinda. Ég ákvað því að haga akstri eftir aðstæðum, sem var uþb 10 km/klst meðalhraði. Þannig gat ég staulast niður af Sandskeiðinu og inn í suddann í Reykjavík. Það voru samt ekki allir sem gátu hagað akstri eftir aðstæðum í morgun, og eflaust hefðu einhverjir ekki átt að fara af stað á vanbúnum bílum... en Íslendingar láta ekki veðrið stjórna sér - þeir stjórna veðrinu.


mbl.is Suðurlandsvegur opnaður að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei...

...er sú góða vísa of oft kveðin að brýna fyrir ökumönnum að hafa einbeitinguna í botni og haga akstri eftir aðstæðum.
mbl.is Harður árekstur á Snorrabraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta...



...er meiriháttar fyndið vídeó sem ég tók af bræðrum hennar Jóhönnu um helgina. Gummi er þessi stóri og Jói er þessi litli...

Góðar stundir.


Móðir...

...mín á afmæli í dag. http://www.landvernd.is/page3.asp?ID=1334

Hún lengi lifi, húrra, húrra, húrraaaaa...

Af hverju er stundum hrópað ferfalt húrra og stundum þrefalt?


Ég...

...bíð spenntur eftir að frú Kolbeins tjái sig um þetta klámskilti á Ísafirði. Jei...

En jæja, komin helgi. Leikhús í kvöld með litlu systir. Afslöppun framundan, að mestu leiti.

Vil að lokum benda lesendum á stutta færslu hér að neðan um væntanlega ferð mína til Grikklands. Einar Matthías má t.d. lesa hana aftur, og aftur, og aftur...

Góðar stundir...


mbl.is Auglýsingaspjald talið særa blygðunarkennd viðskiptavina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móðir...

...mín! Viltu lesa þessa frétt og athuga svo hvort þú sért í raflostshættu!
Þinn sonur.
mbl.is Hættulegir lampar innkallaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband