Færsluflokkur: Dægurmál
25.4.2007 | 00:55
Svangur?
![]() |
Maður skar af sér liminn á veitingastað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.4.2007 | 23:30
Helgin...
...bauð upp á ýmsar heilsutegundir, góðar og slæmar. Tíu hlutir:
- Fór í sturtu.
- Sá stokkönd.
- Lét hljómsveit syngja Hesta-Jóa.
- Hlustaði á Tinu Turner - tíu sinnum.
- Kíkti í Hafnarfjörð.
- Grillaði svín.
- Svillaði grín.
- Keypti ísmola á 150 kall!!!
- Borðaði dularfulla súpu.
- Var sauðslakur.
Já, heilt yfir ágæt helgi...
22.4.2007 | 03:23
Þorlákshöfn...
Var það ekki í Þolló?
![]() |
Karlmaður stunginn í handlegg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2007 | 21:43
Dundaði...
...mér við það í kvöld að búa til nýtt lógó fyrir útgáfufyrirtækið sem ég vinn hjá, Sunnan 4 ehf. Ég tel að merkið sé móðins og tákni á skýran hátt hvað S4 stendur fyrir. Kannski að maður kaupi bara einkaréttinn á þessu...

Góða helgi!
20.4.2007 | 01:50
Systir...
![]() |
Laskað nefhjól tefur farþega Icelandair |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.4.2007 | 21:59
Tímakaup...


![]() |
Færri á nöglum - minna svifryk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.4.2007 | 13:26
Nánast...
...búinn að koma frá mér afkvæmi vikunnar og nú bíður ekkert nema sumarið!
Í kvöld stóð til að fara á langþráð stefnumót með Bjöllunni. Jói hringdi í mig í febrúar og pantaði mig á deit, sem er s.s. SSSól tónleikar í kvöld. Í gærmorgun hringdi hann síðan í mig og sagði mér að amma hans í Vestmannaeyjum hefði tekið upp á því að deyja, blessuð c minning hennar. Þannig að Jói þarf að fara í jarðarför í Vestmannaeyjum í fyrramálið og því verður ekkert stefnumót í kvöld.
Samhryggist þér, Jói minn.
Hvað haldiði annars með sumarið? Vætutíð? Góður heyfengur? Viðburðir?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.4.2007 | 00:48
Arrrggg...
...og urg...! Ef þið ýtið óvart á ctrl+R þá strokast allt sem þið hafið skrifað út úr glugganum. Af þeim sökum getiði ekki lesið þá tíu hluti sem ég gerði um helgina. Nenni ekki að skrifa það aftur. Vil þó taka tvennt fram:
1. Jóhanna eldar besta lambalæri sem ég hef komist í tæri við lengi. Ekki voru hvítlaukssmjörsteiktu sveppirnir lakari.
2. Erlingur sögukennari seldi hlutabréfin sín í Húsinu á Eyrarbakka og keypti hlut í Hamrahlíðarkórnum! Súrar draumfarir?
GK
14.4.2007 | 22:56
Er...
...að horfa með öðru auganu (og eyranu) á Söngkeppni framhaldsskólanna. Það er ekki spurning hver var besti söngvari kvöldsins, en ólíklegt samt að FSu hreppi titilinn þar sem yfirleitt er um einhverja malbikspólitík að ræða... Við hér á mölinni megum okkur lítils en ég vona það allra besta fyrir hönd Sigrúnar Völu.
Hera Björk er eðlileg, en Helga Braga er í hæsta máta óeðlileg...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)