Færsluflokkur: Dægurmál

Ökklameiðsli...

...smökklameiðsli. Neill þorir ekki að feisa Liverpool af því að hann er búinn að sjá að hann drullaði upp á bak með því að velja Hamrana framyfir L'pool. Hin ástæðan gæti líka verið að West Ham á eftir að drullutapa, enda eru þeir á hraðri niðurleið úr úrvalsdeildinni. Góð fjárfesting, Eggert?
mbl.is Neill frá keppni næstu vikurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þokkalega...

...ánægður með að fá Danina. Reyndar hefði mér verið sama hver mótherjinn verður á meðan það eru ekki Spánverjar. Ætli það verði ekki Þýskaland - Spánn í úrslitum?

Annars var ég að koma af hrikalega spennandi körfuboltaleik í Hveragerði áðan. Hamar er kominn í úrslitaleikinn í bikarkeppninni í körfu. Já, og reyndar eru Selfyssingar komnir þangað líka, en ég held að meirihluta þeirra sé slétt sama. Áfram Hamar!


mbl.is Ólafur: „Mætum brjálaðir til leiks“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl...

EikiHawk...er þetta? Maður vissi það fyrirfram að það yrði munur á kvöldinu í kvöld og síðasta undanúrslitakvöldi. Í kvöld voru fimm mjög frambærileg lög að mínu mati en í síðustu viku var eitt lag yfir meðallagi og það komst ekki einu sinni áfram. Lögin þrjú sem fóru áfram í kvöld áttu það öll skilið, en eftir sitja amk tvö lög sem hefðu flogið inn í úrslitin í síðustu viku. Sjáum hvað setur í næstu viku.

Annars langar mig bara til að óska Stebba Steindórs til hamingju með að vera kominn á úrslitakvöldið. Hann tók þarna mjög fínt gítarsóló í laginu hans Eika Hauks. Flottur Rocco.


mbl.is Tveir Eurovisionfarar í úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver...

...er þessi Hörður? Í fjórum af sex efstu sætunum eru Bjarni Harðarson, Helga Harðardóttir, Eygló Harðardóttir og Lilja Harðardóttir. Helv*ti hefur kallinn verið öflugur...

Annars var ágætur punktur hjá Eygló Harðar í fréttunum um daginn. Kannski hefðu bara allir átt að sitja á sér fram yfir prófkjör og bíða eftir að fá úthlutað sæti...


mbl.is Helga Sigrún Harðardóttir í 3. sæti hjá Framsóknarflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahahahah...

Panty_Hoses_and_Nylon_Socks...alveg snilldar komment frá þessum gaur neðst í fréttinni. Það er útbreiddur misskilningur að Nylon séu eitthvað þekktar í Bretlandi. Ég les mikið af breskum blöðum vikulega og hef aldrei séð minnst á gerviefnabandið frá Íslandi. Ekki alveg satt samt... einhverntíman var platan þeirra auglýst í smáauglýsingunum í Heat eða Now. En Einsi Bé er flinkur plöggari og það er sárasaklaust fyrir Íslendinga að halda að Nylon sé stórt númer erlendis. Kannski síðar... eða ekki.

Annars var ég að spá í þessum umboðsmanni. Ef þetta er gaurinn sem var með henni á FM-verðlaununum þá er hann sláandi líkur Frikka 2000. Sem er skemmtilegt þar sem Ágústa Eva og Frikki eru vinir. Nema þetta hafi bara verið Frikki að plata mig. Held samt ekki.

Annars er bara góð helgi framundan með tærnar upp í loft. Kannski gerist eitthvað skemmtilegt.


mbl.is Silvía Nótt með nýjan umboðsmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alfreð...

...er toppnáungi. Hann er að gera marga skemmtilega hluti með liðið, ekki bara þjálfunarlega, heldur líka í þessum litlu hlutum sem eru svo skemmtilegir...


mbl.is HM: Alfreð valdi sama bílstjórann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirgnæfandi...

Alfred...líkur á því að Alfreð hafi sýnt strákunum myndbandið með Guðmundi í Byrginu. Annars væri þetta ekki svona mikið leyndarmál. Kannski vildi hann sýna þeim hvað þeir ættu að gera við Frakkana...

Nema þetta sé, eins og fyrirsögnin gefur í skyn, heimatilbúið myndband með Alfreð og Ólafi.


mbl.is HM: Myndbandi Alfreðs og Ólafi hrósað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það...

...vita það ekki allir en Fúsi leigði einu sinni í bílskúrnum hjá Bjarna Harðar. Og báðir hafa þeir unnið góða sigra í gær og í dag. Tilviljun?
mbl.is Íslendingar gjörsigruðu Evrópumeistaralið Frakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nennti...

...ekki að lesa þetta alltsaman, enda býst ég ekki við að fá sneið af kökunni. Ef ég ætti milljarð aflögu myndi ég örugglega gera eitthvað svipað. Eða bara kaupa lakkrís.
mbl.is Gefa einn milljarð króna í velgerðarsjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver...

...er þetta eiginlega á myndinni? Og hvað tengist hún fréttinni? Kannski heitir hún Blue Ray...


mbl.is Mun klámið ráða úrslitum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband