Færsluflokkur: Dægurmál
17.1.2007 | 09:13
Þetta...
...er líklega það fyndnasta sem ég hef lesið í dag...
...og dagurinn bara rétt að byrja!
![]() |
Íþróttaálfurinn orðinn kyntákn meðal kvenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.1.2007 | 22:43
Einhvern...
![]() |
Fær greidd laun fyrir vinnu í matartíma á nóttinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.1.2007 | 22:41
Fór...
...til tannlæknis í gær. Búinn að fara einu sinni í mánuði síðustu fjóra mánuði. Nóg að gera fyrir tannsann og líklega á ég eftir að fara fleiri ferðir fljótlega... Verð "betri maður" á eftir. Eins og venjulega þá þarf ég nokkra lítra af deyfilyfjum til að sprauta í góminn. Held að það væri líka ráðlegt að staðdeyfa visakortið fyrir svona heimsókn. Það var amk jafn kvíðið og ég fyrir ferðinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.1.2007 | 20:30
Hef...
...verið frekar latur við að drita yfir helgina. Lofaði samt mömmu að ef ég fengi svona letiköst myndi ég skrifa eitthvað hérna til að sýna lífsmark. Þannig að hér hafiði lífsmörkin hjá mér...

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.1.2007 | 20:27
Nú...
...er ég frekar slappur í undirheima-slangri en var að velta fyrir mér þar sem kókaín ef oft nefnt kók, hvort það sé til eitthvað sem heitir diet-kók(aín)... eða jafnvel kók-light...
Bara pæling...
![]() |
Grunaðir um að hafa verið undir áhrifum kókaíns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.1.2007 | 20:43
Ég...
![]() |
Fornleifafræðingar finna 45.000 ára gömul verkfæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.1.2007 | 00:45
Ég...
![]() |
Veður versnar með kvöldinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.1.2007 | 21:05
KSÍ...
...er að leita sér að nýjum formanni. Egg-gert er að hætta þar sem hann er orðinn eigandi West Ham og það fer ekki saman við formennskuna í KSÍ. Þar sem ég er að hætta sem formaður Árborgar fór ég að velta því fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að bjóða mig fram til formanns KSÍ. Fínn titill og launin örugglega ekki slæm. En svo fór ég að hugsa að líklega hefði ég ekki útlitið sem þyrfti til að standa undir nafni sem KSÍ formaður.
Eftir ítarlegar rannsóknir á útliti Eggerts og fegurð minni hef ég planað lýtaaðgerð sem ég mun þurfa að undirgangast til að ná kjöri. Myndin hér að ofan er einhver vísir að því hvernig ég mun líta út.
Því meira sem ég horfi á myndina, því óhugnalegri finnst mér hún. Og reyndar finnst mér "ég" dáldið líkur Michael Stipe, söngvara REM.
Hvað finnst þér? Á ég að leggjast undir hnífinn og fara svo í formanninn?
![]() |
Eggert ræddi við Lauren í gær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.1.2007 | 01:24
Ég...
...er einhversstaðar í erfðaröðinni til Írsku krúnunnar. Spurning hvað Beta drottning myndi segja ef ég færi suðreftir og krefðist kórónu til að ríkja yfir þeim rauðhærðu. Þannig er mál með vexti að ég er afkomandi Kjarvals Írakonungs. Rafarta Kjarvalsdóttir (810) og Eyvindur "Austmaður" Bjarnason (810) eignuðust Helga "magra" árið 835 og eftirleikinn þekkja allir. 1141 ári síðar fæddist ég.
Meðal þekktra milliliða (afar og ömmur) millum mín og Kjarvals má nefna Eirík Sveinbjörnsson, riddara og hirðstjóra (1277-1342), Björn Jórsalafara (1350-1415), Guðbrand Þorláksson, biskup (1541-1627), Benedikt Pálsson, bartskera (1608-1664) og Hallgrímur Tómasson, kaupmann (1877-1932).
Fyrir þá sem vilja hafa hlutina á hreinu þá er Kjarval langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-afi minn (30 x)
Þennan Edgar Æþeling þekki ég hins vegar ekki neitt en ég bíð eftir að einhver hringi í mig og reddi þessu með Írsku krúnuna.
![]() |
Leitað að réttmætum erfingja bresku krúnunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.1.2007 | 00:39
Ófarafögnuður...
...er líklega ekki til í orðabók en var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las Dagskrána í síðustu viku. Ég hef stundum lesið pistla leynipenna sem kallar sig Játvarður í þessu blaði. Pistlarnir eru misjafnir en stundum ágætir.
Í síðustu viku skyggnist Játvarður inn í framtíðina þar sem hann flaggar spádómsgáfu sinni. Eitthvað er nú Játvarður svartsýnn á komandi ár en nákvæmur spádómur hans er ótrúlega hrottalegur og engum er hlíft.
4) Eldsvoði verður á bæ í Vestur Skaftafellssýslu, ekkert manntjón verður.
15) Sitjandi þingmaður í Suðurkjördæmi hættir á þingi vegna veikinda.
21) Rekstur Selfossbíós verður erfiður og verður bíóinu lokað í lok ársins.
25) Stórt brugg og fíkniefnamál kemst upp í nágrenni Selfoss. Margir verða handteknir.
29) Nokkrir af bílum Vegagerðarinnar skemmast í umferðaróhappi - engin slys á fólki.
Þetta er svona greitest hits upptalning úr pistli sem ég hélt fyrst að ætti að vera á léttu nótunum, en ég get ekki ímyndað mér að mörgum stökkvi bros yfir þessu - til dæmis rekstraraðilum Selfossbíós.
Spádómur dullans.tk: Prentsmiðja Suðurlands mun brenna til grunna í eldsvoða á miðju árinu - margir fá alvarlega reykeitrun. Í alvöru... myndi einhver setja eitthvað svona í áramótaspá?
Þess má geta að skoðanir Játvarðs (sem á reyndar að skrifa Játvarðar) þurfa ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir allt er það samt ritstjórinn, Magnús Hlynur, sem ber ábyrgð á þessum "ófarafögnuði".
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)