Færsluflokkur: Dægurmál

Hver...

...er eiginlega verkstjóri á þessu Alþingi? Heyrði í útvarpinu í morgun að 80 mál biðu afgreiðslu fyrir þinglok, sem áttu að vera í dag... Ef þetta væri fyrirtæki með svona slaka frammistöðu í verkefnaskilum þá væri örugglega búið að reka einhvern...
mbl.is „Gengur ekki að margir séu að reyna að stjórna þingfundi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ökum...

...varlega!
mbl.is Bíll valt í Svínahrauni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá...

athens_acropolis_1...er það staðfest. Þriggja daga ferðalag í maí þar sem "heimsóttar" verða þrjár borgir á þremur dögum. París, Aþena og Berlín. Tilefnið er úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Hann er á Ólympíuleikvanginum í Aþenu. Get ekki beðið :-) Er jafn lítið spenntur fyrir París og Berlín eins og ég er spenntur fyrir Aþenu. Þangað hefur mig alltaf langað til að koma.

Annars fékk ég tölvupóst í dag frá manninum sem bauð mér á stefnumót um daginn. Ég samþykkti stefnumótið í dag og greiddi honum nokkra þúsundkalla fyrir vikið.

"Passing from mouth to mouth it was learned by a thousand, and by the time it came to be heard by the king he learned of how a cow laid an egg!"  
- Grískur málsháttur, á vel við á bloggsíðu.


Ég...

...er virkilega ánægður með þennan fréttaflutning. Fókusinn er skýr á málavexti og mikilvægasta atriðið fær súmmeringu í síðustu setningu fréttarinnar... Blaðamaður Moggans fær + í kladdann minn fyrir skemmtilegheit...

Police
mbl.is Lögregla kölluð út vegna þrifa á sameign
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúleysingjabingó...

...í Félagsheimili Sandvíkurhrepps á föstudaginn langa kl. 15:00.
Veglegir vinningar, m.a. folatollur undir Uppspuna frá Rótum.
Mætum öll!
Stjórnin.

jesus


mbl.is Bannað að spila bingó á ákveðnum tímum um páska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Völlurinn...

040207%20013...er upphitaður með gegnumstreymis hitakerfi með fjarstýrðum vöktunarbúnaði og er búist við að með honum náist verulegur sparnaður þar sem vatnsnotkun verður líklega aðeins þriðjungur eða fjórðungur á við sambærilega velli.

Manni hlýnar svo sannarlega hitalögnunum umhverfis hjartaræturnar að lesa þennan texta. Á meðan æfa knattspyrnumenn á Selfossi á nýjum og glæsilegum sígrænum velli sem er þeim kostum búinn að hafa ótengt hitakerfi. Það má kannski benda ÍR-ingunum á þá ágætu leið ef þeir vilja spara vatnskostnaðinn enn frekar.


mbl.is Nýr gervigrasvöllur formlega afhentur ÍR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef...

...Ísland væri Írak, þá héti Valdi koppasali Kalli vopnasali.
mbl.is Bandarískir hermenn sakaðir um að hafa myrt óvopnaða óbreytta Íraka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af...

...hverju er ekki keppt í togara ralli?
mbl.is Togararallið hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekar...

...leiðinleg stemmning í Þorlákshöfn áðan. Enda eðlilegt. Liðið að spila fínan bolta í kvöld, en máttu sín lítils gegn deildarmeisturunum í 4. leikhluta. Á sama tíma og Njarðvíkingar komust yfir bárust þær fréttir um húsið að Fjölnir væri að vinna Tindastól. Þannig að stemmningin fór hratt dvínandi.

Þórsarar eiga samt allt hið besta skilið, og þó að Hamarsmenn séu mínir menn þá vill maður engu sunnlensku liði það að falla, í hvaða íþrótt sem er. Hjarta mitt sló með Þórsurum í kvöld enda eru fínir gaurar í liðinu og Rob er toppnáungi. Vonandi að hann verði þarna áfram og Þórsarar fari beint upp á næsta ári.


mbl.is Fjölnir hélt sér uppi - Þór úr Þorlákshöfn féll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning...

...hvort Jóhannes í Bónus standi við það sem hann sagði mér einhverntíman þegar umræðan var sem hæst um nýja brú. Ef ný brú yrði byggð ætlaði hann að loka sjoppunni á Selfossi. Varla samt að hann geti það núna, þar sem Krónan er farin og fólk neyðist til að versla í Bónus, vilji það versla á lágu verði í heimabyggð...
mbl.is Rætt um að flýta nýrri Ölfusárbrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband