Færsluflokkur: Dægurmál
22.5.2007 | 02:11
Jæja...
15.5.2007 | 01:36
Innkaupaferð...
...dauðans. Hver kannast ekki við það að velja vitlausa röð við afgreiðslukassana í búðinni. Ég skrapp að versla eitthvað smotterí í Bónus í dag en þessi skottúr átti eftir að snúast upp í martröð. Ég valdi mér álitlega röð þar sem ein kona með töluvert mikið af vörum var á undan mér. Hún hamaðist við að raða upp á afgreiðslukassann og mokaði svo ofaní kassa á hinum endanum. Ég tók meira að segja upp á því að hjálpa henni við að taka uppúr körfunni svo þetta gengi hraðar fyrir sig. Á meðan hamaðist konan við að raða í kassa og þakkaði ekki einu sinni fyrir hjálpina. Hún verslaði fyrir rúmlega 40 þúsund en kassadaman var ekkert að flýta sér við að skanna vörurnar. Síðan tók það dágóða stund að hjálpa stelpunni á næsta kassa sem kunni ekkert á kassann, auk þess að missa niður sultukrukku eða einhvern fjandann, svo að náunginn á þeim kassa var lengur en ég í mart-röðinni. Á meðan ég beið og beið var verið að ljúka við að afgreiða fólk á næstu kössum SEM HAFÐI VERIÐ AÐ KOMA INN Í BÚÐINA ÞEGAR ÉG VAR ENNÞÁ AÐ BÍÐA! Svo voru ekki einu sinni allir kassar opnir.
Ekki tók betra við í Nóatúni (já, manni dugar aldrei að fara í eina búð í innkaupaferð á Selfossi). Þar voru greinilega allir í mat, því aðeins einn kassi var opinn og röðin náði langt inn í búð. Talandi um að hafa hærra vöruverð en betri þjónustu - hvað er málið með það?
Ég ráðlegg fólki að versla í Bónus í Hveragerði. Þar fæst allt og þar er pláss fyrir mann. Enda hittir maður alltaf Selfyssinga þegar maður verslar þar. Síðan stendur Kjarval í Þorlákshöfn alltaf fyrir sínu. Hærra vöruverð, persónuleg þjónusta og alltaf heitt á könnunni.
Wal-Mart = stórmarkaður í USA
Mart-röð = röð í stórmarkaði. Má einnig rita martröð.
9.5.2007 | 13:16
Ljósin...
skipið það færist nær og nær
og þessi bloggferð endi fær.
Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið.
Ekki búast við miklu hér í sumar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.5.2007 | 01:20
Jæja...
...mamma búin að líta við og þá er óhætt að halda áfram. Það er einhver bloggleti í manni. Líklega er það bara sumarið að koma...
Meira síðar... ;)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.5.2007 | 01:28
Uppfærði...
...tónspilarann vegna fjölda eftirspurna frá aðdáanda OFL. Og líka í tilefni tvöföldu safnplötunnar sem verður gefin út í sumar (þrjú lög á hvorri plötu). Hlýðið á ef þið hafið ekkert betra að gera...
Myndin: Hljómsveitin að róta árið 1997. Hver þekkir skemmtistaðinn?

Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
2.5.2007 | 01:23
Aldrei...

![]() |
Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.4.2007 | 22:31
Um...
...helgina. Topp 10 listinn frá Hvolsvelli:
- Gekk á gervigrasi.
- Setti hrossagauk á grillið.
- Fór á Pakkhúsið í 5 mínútur.
- Ók grunsamlega hægt um íbúðahverfi að næturlagi.
- Fór á Hvolsvöll.
- Sá leikrit í Þjórsárveri. (Tvær stjörnur á Ágústustaðlinum)
- Drakk tvo bjóra.
- Sá hrafnslaup.
- Tók í höndina á þingmannsefni.
- Kenndi dóttur minni að segja "datt". Það er góður frasi.
GK út
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.4.2007 | 01:13
Það...
...liggur vel á mér. Árborg vann stórsigur á Ægi í lokaumferð Lengjubikarsins í kvöld. Er samt ekki að nenna að skemmta mér í nótt, þrátt fyrir Bjórbandið á Pakkhúsinu. Verð slakur um helgina, enda mikið að gera í vinnunni. Vona að þið eigið góða helgi, og afsakið bloggletina. Bara of mikið að gera til að vera að einhverju "tölvuhangsi".
GK out
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2007 | 13:39
Ég...
![]() |
Mourinho hefur áhyggjur af gulum spjöldum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2007 | 00:58
Ég...
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)