Jóhanna...

3822...er betri kokkur en liðið sem eldar á Ruby Tuesday. Allavega bjó hún til eitthvað guaqamole-kjaftæði í kvöld sem var betra en það sem ég fékk á Ruby's síðasta laugardag. Hafiði cð nýju auglýsinguna frá Ruby? Þar er rosalega girnilegt humarpasta sem ég skellti mér á, en diskurinn sem kom á borðið leit allt öðruvísi út. Meira eins og stórkekkjótt æla. En hún var bragðgóð...

Renndi upp að Laugarvatni í dag þar sem menn voru frekar hressir vegna væntanlegrar uppbyggingar. Fór síðan á fund í Félagslundi í kvöld vegna áhættumats Urriðafossvirkjunar. Í ljós kom að mannslíf eru ekki í hættu ef stíflan rofnar, sem hún gerir ekki.

Annars er ég frekar svekktur. Ég fékk bara 3461 innlit á síðuna síðasta sólarhringinn og á sama tíma voru bara þrír sem kommentuðu. Kannski leit bara mamma svona oft við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ojjj svik og prettir.... á ruby! Er ekki hægt að kæra þetta sem auglýsingabrellu þar sem viðskiptavinir eru ginntir til að hafa viðskipti við þá með fallega skreyttum diskum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum??? ;)

Finnst þetta samt eiginlega mjöööög hallærislegt trix

Auður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 01:32

2 Smámynd: Akstursíþróttakappinn Daníel Sigurðarson

Ég er einn hinna seku - laumast stundum hingað inn, skríð með veggjum og laumast til að flissa í hljóði af skemmtilegum skrýtlum sem þú í bland við skemmtilega kommentara segið.. Og þessa ánægju hef ég hingað til fengið frítt - en nú eru breyttir tímar og ég þarf að kvitta!


DS

Ps. Ég sé hvert ég myndi leita til að fá plöggað deit með svona afburðakvenkokkum - Þú virðist þekkja nokkra þannig!  

Akstursíþróttakappinn Daníel Sigurðarson, 19.10.2007 kl. 09:42

3 Smámynd: Josiha

Hmmm þetta er e-ð skrítið hrós. Er þetta hrós? Ég er betri kokkur en liðið á Ruby Tuesday - það er nú ekki erfitt að vera það! Og svo bjó ég til e-ð kjaftæði. Pff!

Josiha, 19.10.2007 kl. 12:00

4 Smámynd: Josiha

Okei, var loksins að fatta guaqamole-kjaftæði djókið. Fattarinn ekki alveg í orden hjá mér í dag.

Josiha, 19.10.2007 kl. 12:50

5 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Svona áttu góða mömmu

Helga R. Einarsdóttir, 19.10.2007 kl. 16:21

6 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Ég leit inn. 

Takk fyrir kaffið

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 19.10.2007 kl. 16:29

8 Smámynd: GK

AG: Jú, þetta er ljót en bragðgóð brella.

DS: Þessi þjónusta verður alltaf ókeypis. Eitt kvitt dugar svosem. Átt þú ekki annars að vera í útlöndum? Gangi ykkur vel! PS. Skal hafa augun opin fyrir kvenkosti... ;)

JSH: Hrós is a hrós is a hrós.

EEM: Einmitt og móttekið.

JSH2: Langur í þér fattarinn, kona.

HRE: Jú, hún er það.

RB: Verði þér að því.

GHS: Útlit.

GK, 20.10.2007 kl. 01:56

9 identicon

Hæ Gummi Kalli

Ég hef oft reynt að kommenta hérna á síðuna hjá þér, en málið er bara að ég get aldrei svarað þessum erfiðu spurningum sem koma í veg fyrir að kommentið lendi í ruslpóstinu.

í Þetta skiptið fékk ég fólk til að hjálpa mér

Kveðja Helgiba

Helgiba (IP-tala skráð) 20.10.2007 kl. 19:31

10 Smámynd: GK

HB: Hahaha... þetta hefur vafist fyrir verkfræðingnum. Gott þú gast leitað þér hjálpar. Búinn að fá þér Volvo?

GK, 21.10.2007 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband