Í...

...stórum dráttum er hér ferðasaga frá hinum fjóru fræknu til Livrarpolls eins og faðir minn myndi orða það. Meðíferð voru Marínó (a.k.a. Amish-Boy), Marteinn og Baldvin auk mín, sem hér eftir verður nefndur GK.

Eru ekki allir með vegabréfin sín?
Ferðin byrjaði gríðarlega vel. GK og Marteinn voru sóttir á Nönnugötuna þar sem háskólaneminn Marteinn býr en hann bauðst sjálfviljugur til að vera gleðigjafi ferðarinnar með því að taka með sér einhverja doðranta úr verkfræðinni og var gómaður með yfirvigt við check-inn, sem bara voru bækur. GK lánaði Marteini gleraugun sín og trefil og hann eyddi restinni af ferðinni í að lesa.

Þegar við vorum komnir í Hafnarfjörðinn fattaði Baldvin að hann hafði sett vegabréfið sitt í SG úlpuna, sem hann fór ekki í til útlanda. Stefán Magni-ficent var því ræstur út og við ókum á móti honum og vegabréfinu. Þetta tafði okkur um u.þ.b. fjóra bjóra í flugstöðinni. Í flugstöðinni hittum við Lalla Vanillu og Vigni Egil sem voru einmitt á leiðinni á sama leik. Við tókum bjór með þeim og ég át reyktan lax, eins og ég geri yfirleitt fyrir flug. Flugið var prýðilega fínt, fáir í vélinni svo að maður gat breitt úr sér. GK og Ninnó hrekktu Baldvin í svefni og hlustuðu á góða tónlist í flugradíóinu á meðan Marteinn lærði úr þykku bókinni. Flugradíóið bauð upp á marga góða slagara eins og "...this is the road to Hell", "...we're on the road to nowhere" og á SagaClass bauðst mönnum að horfa á "Crash" á DVD. Sannarlega upplífgandi í flugvél alltsaman. Baldvin vaknaði síðan þegar flugvélamaturinn kom aðvífandi og át fimm skammta.


Baldvin hrekktur í flugvélinni
Marteinn á bls. 1 í þykku bókinni
Baldvin búinn með fimm skammta af flugvélamat

Heitasta helvíti
Lendingin í London gekk vel nema hvað Baldvin fékk bæði Hellu og Hvolsvöll fyrir eyrun og var því eins og spastísk fyllibytta það sem eftir lifði kvölds. Undergroundið frá flugvellinum lá beint upp á tröppur á hótelinu við Piccadilly sem hér eftir verður nefnt Hótel Helvíti. Ég hef tvisvar gist þarna áður og þetta hótel býður upp á lítið annað en að þar sé sofið. Gangarnir eru allir í niðurníðslu og sturtur og klósett þrifin árlega. Herbergin sem við fengum voru hins vegar ágæt ef litið er framhjá því að ekki var hægt að opna gluggana (vegna tíðra sjálfsvígstilrauna) og hitastigið í þeim var líklega um 40°C. Reyndar var fínn hiti í London þannig að maður var sveittur í rassaskorunni allan tímann, og sérstaklega á hótelinu.


Ninnó reynir að lina þjáningar Hellu-Baldvins


Komnir til London...

Eftir að hafa krassað á hótelinu var rölt niður á Leicester Squere, miðarnir á leikinn sóttir og síðan var stefnan sett á eitthvað ætilegt. Valið stóð á milli MCDonalds og KFC. Atkvæðin féllu jöfn 2-2 þannig að stein-skæri-blað þurfti til að knýja fram úrslit. KFC liðar unnu og þess vegna var ákveðið að fara á Planet Hollywood. Það reyndist hin prýðilegasta lending og þar sátum við og átum og drukkum þangað til klukkan að verða hálftvö. Þá var stefnan sett niður í bæ en Baldvin var ennþá með Hellu og Hvolsvöll og Marteinn vildi fara upp á hótel að lesa. Það voru því GK og Ninnó sem héldu uppi merkjum íslendinga með því að sötra öl á skuggalegri búllu í dimmu húsasundi, hundeltir af þjófum og pimpum. Drykkjan stóð þó ekki nema í klukkutíma og þá var rölt aftur upp á hótel.


Rifjaætan á Hollývúddplánetunni...

Liiiiiiiiiiiiverpooooool, Liiiiiiiiiiiverpooool...
Eftir tæplega fjögurra tíma svefn var kominn tími á að rúlla út á Euston og fara þar í Liverpoollestina. Lestarferðin var ákaflega tilþrifalítil en við vorum komnir á áfangastað í Liverpool klukkan rúmlega hálf ellefu. Þá var brunað beint á Anfield Road og stemmningin tekin á The Park. Og þvílík stemmning... þarna sungu og trölluðu kallar og kellingar á öllum aldri, ómálga börn sulluðu í bjór og svitinn lak af veggjunum. Lalli og Vignir voru auðvitað mættir og Hesta-Jói var sunginn af innlifun í fyrsta skipti á The Park.


Marteinn í góðu glensi á The Park


Craig Bellamy var mættur í bjórinn á Park

Eftir gríðarlega hressandi upphitun var haldið á frábæran leik hinumegin við götuna þar sem Púllararnir rúlluðu upp Tottenham. Við sátum á ágætum stað og Púllararnir þökkuðu okkur fyrir komuna með því að fagna öllum mörkunum fyrir framan nefið á okkur. Eftir leik var haldið aftur á pöbbinn þar sem GK og Vanilla undu ekki lengi vegna hita og svita. Þá var tölt í Liverpool búðina þar sem GK keypti lítið af dóti, eina treyju, barnadót og ævisögu Gerrard. Á meðan misstu Baldvin og Ninnó sig og versluðu fyrir milljónir króna. Lestin var síðan tekin til London og þá var farið að bera á þunnildi í mannskapnum eftir hádegisdrykkjuna. Bjórinn var því teygaður og spilastokkur sem GK keypti á lestarstöðinni bauð upp á ýmsa leiki til að hressa andann. Baldvin hélt líka uppi skemmtiatriðum með því að láta blindan mann labba á sig og grínast svo í heyrnarlausum manni sem sat fyrir aftan hann. Gleðin var því við völd. En Adam var ekki lengi í paradís. Í næstu sætum við okkur sat fjölskylda af Tottenham-bullum sem veittust að okkur með orðum og látbragði. Tottararnir voru líklega tapsárir eftir leikinn þannig að Íslendingarnir brugðu á það ráð að syngja drykkjuvísur og vera með almenn ólæti til að sýnast sem illvígastir. Það bar árangur og Tottenham fjölskyldan yfirgaf lestina með skottið á milli lappanna.


You crazy Icelanders...


Marteinn ánægður með sigurinn...

Drullug dvergasturta
Þegar heim var komið var brugðið á það ráð að fara í sturtu á Hótel Helvíti. Marteinn fór fyrstur og kláraði heita vatnið þannig að restin þurfti að fara í ískalda sturtu í drulluskítugum sturtuklefa sem hannaður var fyrir tælenska dverga. Aftur var haldið út á lífið, fyrst og fremst til að borða og Plánetan Hollývúdd varð aftur fyrir valinu. Eitthvað var stemmningin þó minni en kvöldið áður, sérstaklega þar sem Baldvin var ekki hleypt inn þar sem hann var ekki í ástandi til að vera á staðnum að mati dyravarðarins. Það var mjög undarlegt því Baldvin var skraufþurr og ekkert skrýtnari en venjulega. Eftir japl, jaml og fuður var Badda þó hleypt inn og stórsteikur lágu í valnum.
Klukkan var alls ekki orðin margt þegar hinir fjórir fræknu yfirgáfu Hollywoodplánetuna og skoðuðu stræti Lundúna lítillega áður en haldið var upp á hótel og ferðaþreytan afundin. Féllu menn í fastasvefn eftir þetta.


Baldvin burstar tennurnar

Slömberpartí
Sunnudagurinn var mesti rólyndisdagur. Hástræti Lundúna voru skoðuð, Baldvin keypti hatt, Amish-boy keypti bjór, Marteinn las bók og GK tók myndir. Reyndar sló Ninnó í gegn með augum djöfulsins eftir að hafa sofnað með linsurnar í sér kvöldið áður og var rauðeygður eins og skrattinn sem hann er. Eftir bæjarröltið var síðan haldið í The Comedy Store. Það er stand-up búlla þar sem eru spunakvöld á sunnudögum. Þeir sem hafa séð "Whose line is it anyway" vita hvað er verið að tala um en sjö leikarar spinna frábærlega fyndið bull eftir ábendingum úr salnum. Auðvitað komu íslendingarnir sér að og salurinn fékk að launum frábært atriði um íslenskan snjóhúsahönnuð/klámstjörnu. Mæli með þessu fyrir alla sem fara til London. Maður getur farið aftur og aftur því showið er aldrei eins tvö kvöld í röð.


Satan mættur á svæðið, hress og kátur...

Eftir spaugið var haldið á Adams Rib í klúbblokur og rifjasteik þar sem við deildum sal með fjórum ítölskum skutlum sem allar voru loðnar undir höndunum og fjórum enskum eldri-borgara-konum sem kiknuðu í hnjáliðunum við að sjá íslensku karlmennina. Þeim ítölsku var slétt sama. Eftir matinn var stefnan tekin á feitt djammkvöld á hótelbarnum en þar voru bara einhverjir leiðindabelgir og hljómsveit hússins farin heim. Stefnan var því tekin upp á herbergi með bjór í nesti og vegna hitastigsins í herbergjunum var ekki hægt að bjóða upp á neitt annað en náttfatapartí... sem er ekki mikill klæðnaður í tilfelli Ninnós. Marteinn ætlaði að "lesa einn kafla" áður en hann færi í partíið. Við sátum því þrír í rúminu hjá Ninnó í frekar sorglegu partíi og tilraunir GK til að ná hinum út á lífið aftur báru engan árangur. GK yfirgaf síðan partíið í fússi þegar Ninnó og Baldvin voru sofnaðir í faðmi hvors annars. Þrátt fyrir lítið djamm var ekki lítið um grín... en slappt samt... eða ekki.


Haldið heim á mánudegi...

Böstaður í tollinum
Eftir full english breakfast hjá GK og Baldvin var haldið út á flugvöll. Þar var öryggisgæslan í þvílíku hámarki að ég hef aldrei séð annað eins. Þrír fjórðu sluppu í gegn en Ninnó var böstaður í töllinum með mjög skrautlegan handfarangur. Hann innihélt þrjá kveikjara, fimm flöskur með grunsamlegum vökva, nokkur vopn hentug til stungu og grunsamlegan amish-skeggvöxt. Amish-boy var sleppt eftir yfirheyrslur og rassaleit. Á flugvellinum voru síðan fastir liðir eins og venjulega, sjávarréttir og stuð. Tiltölulega fátt markvert gerðist á heimleiðinni og Ninnó slapp óséður í gegnum tollinn. Takk fyrir góða ferð...

(Þetta er lengsta blogg sem ég hef skrifað...)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér er alveg sama þó það væri langt, nú veit ég allt um þínar utanlandsferðir. Einhverntíman skulum við fara saman að skoða geitur í svissnesku ölpunum. Takk fyrir fróðlega lesningu, mamma.

ammatutte (IP-tala skráð) 8.10.2006 kl. 22:22

2 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Þetta var skemmtileg lesning litli hafur...

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 8.10.2006 kl. 23:07

3 Smámynd: Josiha

Þetta er án efa það allra lengsta sem þú hefur bloggað! :-)

En þetta var FRÁBÆR lesning. Flott skrifað og gott "tempó" í ritstílnum :-)

Þú ættir að vista þetta einhvers staðar. Bloggið gæti kannski einhvern tíma horfið eða e-ð og þá er leiðinlegt að eiga ekki þessa ferðasögu á vísum stað.

Annars bara: *ÁST* :*

Josiha, 9.10.2006 kl. 00:12

4 Smámynd: Einar Matthías Kristjánsson

Mikið lýst mér vel á Dagbók GK :-)

En varðandi ferðina skynja ég of mikil rólegheit í ykkur, maður sefur ekkert í svona helgarferðum, maður á varla að muna eftir hótelherberginu og maður Á ALLS EKKI AÐ TAKA MEÐ SÉR BÓK!!!!!

Ninnó býr/bjó allavega yfir afargóðu þoli í DK í vor.

Einar Matthías Kristjánsson, 9.10.2006 kl. 19:53

5 Smámynd: GK

Já þetta var slöpp djammferð. Það var reyndar nóg djammað en ekki fram á nótt... Ninnó var slappur, en ekki eins slappur og Baldvin, sem var ekki nærri því eins slappur og verkfræðineminn... ROP!

GK, 9.10.2006 kl. 20:04

6 Smámynd: GK

Við vorum að velta því fyrir okkur hvort við værum orðnir svona gamlir... hehe... við vorum bara aumingjar... ;-)

GK, 9.10.2006 kl. 20:04

7 Smámynd: mojo-jojo

Þessi ferð virðist hafa verið í svona kristilegri kantinum hjá ykkur fyrir utan augun á Ninnó hehe. Alveg greinilegt að það hafi vantað svona eins og einn ölglaðann kokkanema í þessa ferð ;)

mojo-jojo, 10.10.2006 kl. 01:15

8 identicon

nei það vantaði bara meiri svefn fyrir ferðina og miklu meiri kraft í mig til að rífa þetta á lappir og ekki endalaust að vera hræddur um að drekka ekki eins og venjulega þótt ég sé með gk því að málið er þannig að mér líður altaf svo illa fullur með honum því hann verður aldrei drukkin og mér finnst alltaf eins og honum finnist eins og ég leiðinlegur í glasi því ég geri svo mikið af mér alltaf.

7 (IP-tala skráð) 10.10.2006 kl. 22:22

9 Smámynd: GK

Hahahaha.... já ég var dáldið svekktur með að þú varðst aldrei leiðinlegur... þú varst bara skemmtilegur allan tímann... hálf fúlt...

GK, 10.10.2006 kl. 22:31

10 Smámynd: Fjóla =)

Snilldar blogg.. og greinilega verið hin ágætis ferð hjá ykkur félögum...:) örugglega jafn gaman hjá ykkur eins og hjá mér og Jóhönnu í sveitinni...8-)

Fjóla =), 11.10.2006 kl. 16:08

11 Smámynd: Einar Matthías Kristjánsson

Hahaha já Ninnó maður hefði nú búist við meiru frá þér svona fjarri heimahögunum :-) Ég býð mig og Jóa spóa fram sem farastjóra og drykkjustjóra* í "næstu" ferð ykkar :-)

*drykkjustjóri er svipað og einkaþjálfari, hvetur menn til dáða með því að öskra mann áfram.

Annars er ég ennþá að hneykslast á Gumma fyrir að

A - taka bækur með sér til Englands og

B - kíkja í alvörunni í þær!!!! (venjulega væri svona bara gert til að friða mömmu og pabba........ekki nema að hann hafi beðið þig um að setja það í ferðasöguna ;-)

Einar Matthías Kristjánsson, 11.10.2006 kl. 16:43

12 Smámynd: Josiha

Hahaha :-D Ninnó minn þú ert alveg ágætur ;-)

Josiha, 11.10.2006 kl. 20:57

13 Smámynd: GK

Já, dáldið sérstakt hjá Gumma, bæði að taka bækurnar með sér - og lesa þær!

GK, 11.10.2006 kl. 22:22

14 identicon

Aldeilis dáindis skemmtilegt, gott að fleiri geta langhundað en ég! Mikið öfunda ég ykkur af því að hafa farið á leik í ensku, búið að langa í mörg ár;-( knús að norðan

Halla (IP-tala skráð) 11.10.2006 kl. 23:03

15 Smámynd: Guðmundur Marteinn Hannesson

hahaha.. ekkert að því að taka bækur með sér og lesa þær :p

...ég vil ekki fara að falla vegna einnar utanlandsfarar :P

...síðan vil ég meina að það hafi verið meira stuð í bókapartyinu mínu heldur en í náttfatapartyinu :P

Guðmundur Marteinn Hannesson, 12.10.2006 kl. 17:52

16 identicon

það er ekki nema von að þetta hafi litið út fyrir að hafa verið léleg djamm ferð, málið er bara að þrír tímar á park er á við heila þjóðhátíð í eyjum og hver hefur ekki þurft að leggja sig eftir þjóðhátíð

balli (IP-tala skráð) 12.10.2006 kl. 22:33

17 Smámynd: GK

Baldvin hefur rétt fyrir sér...

GK, 12.10.2006 kl. 23:34

18 Smámynd: Einar Matthías Kristjánsson

úfff að heyra þetta.....

Gummi M - þetta er svo rangt á svo marga vegu að það tekur því ekki að svara þessu!!!! og Liverpoolferð er ekkert bara einhver utanlandsferð

Balli - Öll helgarferðin er á við GÓÐA þjóðhátíð og Park er rúmur brekkusöngur.

GK - nei ekki alveg.

Jó við förum með næst

Einar Matthías Kristjánsson, 13.10.2006 kl. 01:37

19 Smámynd: Guðmundur Marteinn Hannesson

hahaha... eru menn sárir að ég hafi tekið bækur með?

Guðmundur Marteinn Hannesson, 13.10.2006 kl. 13:18

20 Smámynd: Jakob

Þetta er nú meiri umræðan!

Í fyrsta lagi hafði ég verið meira virkur í djamminu... í örðu lagi hefði ég ekki tekið með mér bækur... og í þriðja lagi hefði ég sofið hjá enskri stelpu!!!

:)

Jakob, 14.10.2006 kl. 14:40

21 Smámynd: Jakob

...ef ferðinni er heitið á Arsenal-Liverpool einhverntíman þá er ég með! :)

Jakob, 14.10.2006 kl. 14:40

22 Smámynd: Josiha

*fliss*

Josiha, 15.10.2006 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband