20.10.2007 | 02:04
Ég...
...gleymdi aðalatriðunum í færslu gærdagsins. Það voru veitingarnar (lystisemdir blaðamannastéttarinnar) á fundunum tveimur.
1) Laugarvatn. Fundurinn var á veitingahúsinu Lindinni. Rosa fín ostakaka með einhverju berjagumsi. Fimm stjörnur. Síðan var snittubrauð með reyktum laxi og eitthvað. Tvær og hálf stjarna.
2) Félagslundur. Kaffi eða vatn. Fékk mér hvorugt.
Safnaði saman uppáskriftum iðnmeistara fyrir húsið í dag. Sökkulgerð á að hefjast eftir helgi ef allt gengur eftir. Kíkti síðan í kaffi og ís á Bellubar með Árna og Lalla í kvöld. Skoðuðum fyrst væntanlega húseign Árna og Helgu. Very nice.
Júlía Katrín átti afmæli í vikunni og í dag, laugardag, er afmælisveisla. Reikna fastlega með fimm stjörnu veitingum að hætti systur minnar.
Athugasemdir
Mig langar í veitingar að hætti systur þinnar!
Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 20.10.2007 kl. 03:37
Þetta var afspyrnugott blogg
Josiha, 20.10.2007 kl. 14:13
ÁNK: Já, það er fátt sem slær þeim við. Nema aspasgubb móður minnar.
JSH: Geta fótboltamenn tekið afspyrnu? Eða er það sér keppnisgrein?
GK, 20.10.2007 kl. 14:36
Mér þykir þetta aðhald sem þú ert í allsérstakt svo ég taki ekki dýpra í árinni.
Rúnarsdóttir, 20.10.2007 kl. 15:17
Ég er ekki dóttir hand G
mýrarljósið (IP-tala skráð) 20.10.2007 kl. 16:22
ég var hér...
Guðmundur Marteinn Hannesson, 20.10.2007 kl. 17:19
AR: Hmmm... já.
EI: Æ fyrirgefðu, ég hef verið að hugsa um eitthvað annað. Dóttir I.
GMH: Ég c það.
GK, 21.10.2007 kl. 00:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.