5.3.2007 | 22:25
Britney...
...er komin í fréttirnar enn á ný. Nú segir slúðurpressan að hún hafi reynt að hengja sig með rúmfötunum sínum á meðferðarheimilinu sem hún dvelur á. Ekki nóg með það heldur krotaði hún "666" á ennið á sér og hljóp síðan um öskrandi að hún væri Andkristur. Athyglisvert.
Annars er komin ný vinnuvika og ef ég á að telja upp afrek helgarinnar þá eru þau þessi:
- Labbaði í slabbi.
- Borðaði humarsúpu.
- Fór á Hvolsvöll og í Hveragerði.
- Henti sjónvarpinu út um gluggann.
- Fór í afmæli.
- Horfði ekki á The Click.
- Skaut tappa úr flösku.
- Var með flösu.
- Las gamlan Mogga.
- Var í hlýrabol.
En varðandi Britney, þá má lesa um fleiri furðufugla í viðhangandi frétt.
Jesús býr í Burnley | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ertu að tala um "Click" eða "The Click" ... ?
Rúnarsdóttir, 5.3.2007 kl. 22:50
Ætli hún heiti ekki bara Click... en það skiptir ekki máli, ég horfði ekki á The-ið heldur... ;)
GK, 5.3.2007 kl. 23:10
Ég grét yfir Click í bíó ... sko hágrét eins og ungabarn. Segir samt sennilega meira um mig en myndina ...
Rúnarsdóttir, 5.3.2007 kl. 23:30
Hey, hver sagði þér eiginlega þessar mikilvægu og merkilegu upplýsingar um Britney greyið?
Annars er Click mjög góð mynd. Grenjaði yfir henni í bíó og grenjaði aftur yfir henni á laugardaginn. Uhuhuhuuuu...
Josiha, 6.3.2007 kl. 00:17
Hvar fær mbl allar þessar upplýsingar um Britney ? En ég veit kl hvað þú hentir sjónvarpinu út um gluggann, var það ekki eina rétta í stöðunni og frekar næs bara? Svo horfir þú bara á evrópuleikinn á pöb
Tómas Þóroddsson, 6.3.2007 kl. 01:08
Það var einhver slúðurkerling sem hvíslaði þessu að mér með hana Britneyju.
En já, Click er ágæt...
GK, 6.3.2007 kl. 01:09
Hehe... Tommi! Eins og þig grunar kannski þá henti ég sjónvarpinu út á 92. mínútu...
GK, 6.3.2007 kl. 01:15
Já ég var við hliðina á Elvari Gunn á 92. min og veit því vel hvernig þér leið, Elvar náði bara ekki að tegja sig í tækið á Gunnerspub.
Tómas Þóroddsson, 6.3.2007 kl. 09:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.