Færsluflokkur: Dægurmál
20.11.2007 | 20:35
Stundum...

...getur maður ekki annað en hlegið að vinnubrögðum blaðamanna visir.is. Rétt fyrir klukkan sjö í kvöld varð jarðskjálfti upp á fjóra á Richter utan við Seltjarnarnes. Samkvæmt Vísi þá var fólki á Selfossi mjög brugðið við þennan skjálfta og þusti út á götu...
Fréttina má lesa hér. Þetta verður ekki mikið fyndnara...
(Annars er bara stuð í vinnunni - hér hristist allt og skelfur)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
17.11.2007 | 22:52
Nú...
...þykist ég vera þokkalega staðkunnugur uppi í Hrepp. En hvar er Skeiðarvegur, norðan Flúða? Mamma? |
![]() |
Bíll fauk út af undir Ingólfsfjalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.11.2007 | 23:51
Ástæðan...

Nei, samt ekki. Þessir búningar eru nú ekki beint klæðilegir...
Hamarskonur mættu s.s. Keflavík í fyrradag þar sem þessar myndir eru teknar. Hamar laut í gras... eða öllu heldur gólfefni, þrátt fyrir góðan leik. Það er bara illmögulegt að stöðva þessar massatönuðu og helstrípuðu Keflavíkurstelpur. Man! Þær hljóta að æfa í ljósabekk! Minnti mig á grein sem EEM skrifaði einu sinni um að þegar Reykvíkingar fóru út á land að leita að hnakkabænum þá hafi þeir villst og endað á Selfossi. Auðvitað ætluðu þeir til Keflavíkur.
Hamar fær Grindavík í heimsókn á morgun, verður vonandi góð skemmtun. Ef menn vilja skella uppúr þá má setja sömu dómara á þennan leik og þann síðasta - þeir voru hlægilegir.
Hér að neðan eru fleiri myndir úr leiknum, svona í tilefni af degi íslenskrar tungu. Jónas frændi minn varð 200 ára í dag, en hann heldur ekki upp á afmælið fyrr en um næstu helgi.


Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.11.2007 | 23:17
Af...
...hverju eru gellurnar í CSI: Miami svona hot? Það er meira segja ein sem gæti verið systir Gittu Hau. Glætan að það séu svona hot gellur í tæknideild lögreglunnar.
Annars kemst CSI: Miami ekki í hálfkvisti við Grissom og félaga í Las Vegas. Það er ekki nóg að heita David Caruso, segja kúl frasa og setja upp sólgleraugu. (Og tala eins og Mr. Movievoice)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.11.2007 | 11:45
Ég...
...var að huxa. Um síðustu helgi var tveimur konum nauðgað í húsasundum í miðborg Reykjavíkur. Á meðan er lögreglan að handtaka þá sem pissa undir berum himni...
Er ekki eitthvað skakkt við þessa mynd?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.11.2007 | 01:44
Viðeigandi...
...í framhaldi af færslu gærdagsins að grípa niður í kvikmyndasögu íslenska lýðveldisins (sem reyndar er á ensku, einhverra hluta vegna)
Hér er s.s. verið að fjalla um Stuttmyndadaga í Reykjavík en við Einar Elí, eða Einar M eins og hann var kallaður í gamla daga (þegar ég var Gummi S) áttum gríðarlega vinsælar myndir á þessum hátíðum á upphafsárum hennar...
1995
Some 50 works were shown at the fourth Shortfilm Festival. María Sigurðardóttir of Berlin deservedly received the 1st prize for Two little Girls and a War. Two directors shared the 2nd prize: Gunnar B. Guðmundsson for TF-3BB, about a visit from outer space, where the aliens turn out to be uncomfortably small, and Guðmundur Karl Sigurdórsson for Einelti. 3rd prize went to Ragnar Bragason for Ég elska þig Stella, which also received the audience prize, 4th prize went to Klósettmenning, by Grímur Hákonarson and Rúnar E. Rúnarsson.
Hrafn Gunnlaugsson var formaður dómnefndar og fór hann sérstaklega fögrum orðum um myndina okkar. Ég heyrði reyndar aldrei hvað hann sagði um myndina þar sem ég var á hlaupum milli Hótel Borgar og næsta kaffihúss. Við Einar sátum á kaffihúsinu og gátum fylgst með þar en okkur var ekki hleypt inn á Borgina (vegna aldurs?). Líklega hefur Hrafn sagt eitthvað gott um innihaldið, því myndgæðin voru ömurleg.
Glöggir lesendur sjá að þarna höfðum við Einar (og Benni Kalli) betur en tveir Edduverðlaunahafar gærkvöldsins... Ég held að Gunnar B. hafi líka fengið Edduna fyrir Karamellumyndina á sínum tíma. Það er þess vegna bara tímaspursmál hvenær við hreppum Edduna...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
12.11.2007 | 01:04
Verður...
...maður ekki að tjá sig eitthvað um Edduna eins og allir aðrir? Ég hef sérstaklega gaman að horfa á svona athafnir og þó að Eddan hafi oft verið misleiðinleg, þá var prógrammið í kvöld skemmtilegt. Það var ekki síst vegna framlags Þorsteins Guðmundssonar, sem er af mörgum misskilinn. Það verður reyndar seint tekið af meðlimum akademíunnar að þeir eru einstaklega slakir ræðumenn.
Ég hef cð fæstar þessara mynda sem tilnefndar voru. Hins vegar voru margir þarna sem ég samgladdist og vona að þeir hafi átt verðlaun sín skilin. Foreldrar fékk sex verðlaun og samgleðst ég Ragnari Bragasyni og Vesturportsliðinu, sem lagði blóð, svita og tár af mörkum við gerð myndanna Börn/Foreldrar. Og Ingvar E þarf ekkert að skammast sín fyrir að vinna sína fimmtu leikaraEddu. Hann er einfaldlega bestur í sínu fagi.
Síðan langar mig til að samgleðjast Grími Hákonar, sem fékk verðlaun fyrir bestu stuttmyndina. Grímur hefur komið langan veg síðan við Grímur og Einar Elí héldum saman stuttmyndakvöld á HM kaffi fyrir 12 árum síðan. Þar sýndi hann m.a. meistarastykkið Klósettmenning.
Gunni Árna (sjá mynd) fær líka samfagn fyrir að fá verðlaun fyrir bestu hljóðhönnun í kvikmynd. Gunni er Selfyssingur og, ekki síst fyrir þær sakir, toppgaur.
Eini skandall kvöldsins var að Venni Páer fékk engin verðlaun.
![]() |
Kvikmyndin Foreldrar fékk flest Edduverðlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.11.2007 | 01:20
Það...
Herra Ísland er á Skjá einum í nóvember. Keppnin er í boði Oroblu-sokkabuxna. Hversu gay er það? Af hverju er Herra Ísland ekki í boði Steypustöðvarinnar. Eða Harðnagla ehf.
Annars er lítið að frétta ;-)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.11.2007 | 19:07
Sitjum...
...a Heathrow. Einn og halfur timi i flug. Buinn ad borda skoskan lax.
Meira sidar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.11.2007 | 23:08
Er...
...kominn til London. Sit vid arininn a Bloomsbury Thistle.
Her se stud.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)