Færsluflokkur: Dægurmál
27.9.2007 | 21:15
Ég...
...er frekar lélegur í að blogga á mánudögum og þriðjudögum vegna vinnu. Einhverra hluta vegna halda margir það að ef maður vinni við tölvu þá geti maður bara hangið á netinu allan daginn. Ég er einhvernveginn þannig innstilltur að þegar ég er að vinna, þá er ég að vinna. Kannski er ég bara skrýtinn.
Fór með bílinn í þjónustuskoðun og smurningu í dag. Kostaði sitt. Hefði líklega getað farið hálfa leiðina á Anfield fyrir peninginn. Vorkenndi reyndar Eyþóri Jóns (sem skveraði bílinn fyrir mig) því jómfrúrferðin hans á Anfield var um síðustu helgi á lélegan 0-0 leik gegn Birmingham.
Skrapp niður í Þorlákshöfn áðan til að mynda Humarvinnsluna. Hitti bara á einhverja Pólverja og þeir voru bara frekar hressir þó að það væri búið að segja þeim upp. Íslendingarnir voru ekki eins kátir.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
23.9.2007 | 22:56
Mér...
...var bjargað í dag. Ég fór á torfærukeppnina á Hellu í þvílíku hífandi roki og sandbyl að annað eins hefur ekki sést. Ég held að ástandið gæti ekki orðið mikið verra í Sahara eyðimörkinni. Eftir að hafa grenjað úr mér augun, kominn með svartan hortaum út á kinn fékk ég vinalegt bank á öxlina. Þar var kominn björgunarsveitarmaður með flugelda-skotgleraugu sem hann gaf mér, og bjargaði mér alveg. Ég sá a.m.k. út um þau þangað til sandurinn var búinn að sandblása gleraugun mött. Þegar ég fann síðan bílinn minn aftur eftir keppni þá var hann krómaður á annarri hliðinni. Ég er enn að kroppa svartan sand útúr eyrunum, nefinu og á milli tannanna. Jóhanna toppaði síðan daginn með einiberjakrydduðu lambalæri, brúnuðum kartöflum, smjörsteiktum sveppum, gulrótum og sveppasósu. Er hægt að fara fram á meira? ![]() Læt fylgja með eina mynd af Krumma frænda á Hrafninum, sem tók vel á því í dag. |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
23.9.2007 | 01:01
Það...
...er kominn 23. september. Í dag eru haustjafndægur og því tilvalið að láta af bloggfríinu. Ég er á því að blogg c vetraríþrótt. Maður á ekki að hanga yfir tölvunni á sumrin (reyndar matsatriði hvort maður á að gera það á veturna). Styttist jafnvel í að keppt verði í bloggi á vetrarólympíuleikunum. Spurning hvort Íslendingar eigi ekki eftir að sópa að sér verðlaunum í greininni. Það fer reyndar eftir því hverjir verða valdir í liðið. Mér hefur a.m.k. ekki sýnst það að vinsældir fari saman við gæði bloggara. Ég myndi velja Dr. Gunna í blogglandsliðið. |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
9.9.2007 | 02:29
?
![]() |
Hvað gerist 23. september?
.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
21.7.2007 | 22:39
Baggalútur...
![]() |
Íslenskur vísindamaður tekur þátt í að leysa gátuna um eitt vinsælasta borðspil heims |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.7.2007 | 02:27
Móðir...
...mín og Einar Elí klukkuðu mig. Tek þátt í ruglinu þó að ég c í bloggfríi.
Átta illa þekktar staðreyndir um mig!
- Mér leiðast samkvæmisleikir
- Ég bý til mjög gott túnfisksalat
- Ég á þrjá (austur)evrópska bíla (Skóda, Lödu Sport & VW Bjöllu)
- Ég lít á 4 sem happatölu
- Ég er náskyldur Jónasi skáldi Hallgrímssyni
- Ég gæti hugsað mér að keppa í stafsetningu
- Mér finnst gaman í karókí
- Ég klukka aldrei annað fólk
GK út
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.7.2007 | 23:45
Fyrir...
...áhugasama má benda á að Kerry Katona er ekki á myndinni sem fylgir fréttinni.
(Hún er víst líka forfallinn kókaínfíkill og ömurleg móðir og maðurinn hennar díler, en það er önnur saga. Það er víst töluvert mikið af fólki sem hatar hana og bíður færis að stúta henni. Þetta lærir maður á því að lesa bresku slúðurpressuna á klósettinu.)
![]() |
Kerry Katona haldið fanginni af ræningjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.7.2007 | 17:40
Hvar...
![]() |
Hraðakstur þrátt fyrir helmingi hærri sektir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.7.2007 | 02:12
Í...
...öllu stuðinu á Akranesi á miðvikudaginn féllu skemmtileg orð á Sýn.
(Leikmaður Keflavíkur gengur af velli í nærmynd.)
Þorsteinn Gunnarsson: Já, Marco Kotilainen er farinn af velli... Nei, þetta er Einar Orri... já, hann er líkur Símun Samuelsen.
Og Guðmundur Steinarsson fór líka á kostum í sjónvarpsviðtali daginn eftir:
...þetta gerðist líka í leik KRs (káerrs) og Fram.
Gaman þegar menn eru farnir að fallbeygja skammstafanir...
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.6.2007 | 21:14
Ekki...
![]() |
Tvær Blikakonur reknar af velli á sjö mínútna kafla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)