14.8.2006 | 19:12
Það...
...fauk heldur betur í mig áðan. Rok og grjóthríð í sviptivindum undir Ingólfsfjalli. Við vorum á leiðinni úr bænum og ókum fram á útlendinga hjólandi/teymandi/fjúkandi undir fjallinu. Tveimur mínútum síðar hringdi Jói í mig og sagði mér að það hefði fokið hestakerra undir fjallinu. Ég sneri við og tók mynd en var næstum því fokinn út í skurð þar sem ég stóð með myndavélina. Samt er ég nú engin léttavara...
Annars sá ég það á netinu í dag að Hávarður Ísfirðingur varð í 3. sæti á mýrarboltamótinu. Sannarlega glæst byrjun á mýrarboltaferli okkar Ninnó. Við spiluðum reyndar bara þrjá fyrstu leikina í riðlakeppninni og misstum af útslitakeppninni. En við stóðum fyrir okkar.
Hestakerra fauk undir Ingólfsfjalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
voru hross í kerruni
jeg (IP-tala skráð) 14.8.2006 kl. 22:23
nei enginn hross en við erum snilingar í mýrabolta
7 (IP-tala skráð) 14.8.2006 kl. 22:54
ég sagðist reyndar bara hafa séð lögguna keyra yfir ölfusárbrú, ekkert um að kerra hafi farið á hliðina, ;)
Jói (IP-tala skráð) 15.8.2006 kl. 00:38
er fólk virkilega meira að pæla í þessari hestakerru en því að Hávarður Ísfirðingur varð í 3. sæti á Mýrarbolta?
;)
JJ (IP-tala skráð) 16.8.2006 kl. 16:04
Hahaha... menn eru að missa af aðalatriðinu hérna. Hverjum er ekki sama um þessa kerru...
GK, 16.8.2006 kl. 23:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.