18.4.2007 | 21:59
Tímakaup...
...dekkjakalla er nokkuð gott. Fór með bílinn í umfelgun í dag og borgaði fyrir 5.100 krónur. Umfelgunin tók korter, þannig að dekkjakallinn er með 20.400 á tímann. Gefum okkur það að hann vinni átta tíma á dag, og sé þ.a.l. með 40 stunda vinnuviku þá er mánaðarkaupið hans rúmar 3,2 milljónir. En það er að sjálfsögðu fyrir skatt...
Færri á nöglum - minna svifryk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Til hamingju með afmælið lilli minn,og gleðilegt sumar...njóttu dagsins
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 19.4.2007 kl. 00:05
Skemmtilegur útreikningur. Hvað voru margir að vinna í bílnum ? Tímakaup dekkjakalla samkvæmt Eflingartaxta er um 700 kr. Þarf líka að hafa í huga að verkstæðið þarf að sinna þér allt árið en er ekki að hafa uppí kostnað 10 mánuði á ári.
Scorpion (IP-tala skráð) 19.4.2007 kl. 00:11
Takk fyrir það, Guðbjörg. Sömuleiðis með sumarið.
Sporðdreki; það var ca. einn að vinna í bílnum... Ég geri mér reyndar grein fyrir rekstrarkostnaði verkstæðisins og þetta var nú meira pæling á léttu nótunum. En gott samt að þú kafaðir inn í þetta... ;)
GK, 19.4.2007 kl. 00:52
Til hamingju með afmælið sæti minn
Josiha, 19.4.2007 kl. 01:20
Auðvitað með hamingju með daginn hér líka!
Jakob, 19.4.2007 kl. 01:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.