22.2.2007 | 22:48
Þetta...
...minnir mig á Innrásina frá Mars. Þar var það minnsta lífsformið, bakteríur, sem vann bug á geimverunum en ekkert stórskotalið vann á þeim.
Hérna eru það bændurnir, litlu mennirnir, sem ná að hrekja burtu klámhundana. Stórskotalið þingmanna, lögreglu og annarra yfirvalda fékk ekkert að gert.
Annars er þetta auðvitað út í hött að hefta aðgang túrista svona að landinu. Spurning hvort samtök aðila í hótel- og veitingarekstri móti einhverja stefnu í því hvaða ferðamenn eru velkomnir hingað og hverjir ekki.
Hætt við klámráðstefnu hér á landi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég lenti næstum í aftanákeyrslu við Kaplakrika í morgun þegar Hrönn Greipsdóttir sagðist í viðtali á Rás 1 vera að athuga það hjá Radisson-SAS keðjunni hvort hún mætti láta taka bláu myndirnar út úr Pay-TV á hótelunum á Íslandi, það væru fordæmi fyrir því til dæmis í Mið-Austurlöndum! HALLÓ!?!
Rúnarsdóttir, 23.2.2007 kl. 11:01
Hahahaha... þið eruð báðar skondnar, en algjörlega á sitthvorn háttinn...
GK, 23.2.2007 kl. 22:26
þær drápu ekki allarég er enn hérna hehehe
Ólafur fannberg, 23.2.2007 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.