16.1.2007 | 22:41
Fór...
...til tannlæknis í gær. Búinn að fara einu sinni í mánuði síðustu fjóra mánuði. Nóg að gera fyrir tannsann og líklega á ég eftir að fara fleiri ferðir fljótlega... Verð "betri maður" á eftir. Eins og venjulega þá þarf ég nokkra lítra af deyfilyfjum til að sprauta í góminn. Held að það væri líka ráðlegt að staðdeyfa visakortið fyrir svona heimsókn. Það var amk jafn kvíðið og ég fyrir ferðinni.
Athugasemdir
fara bara ódeyfður hehe...bíta á jaxlinn....
Ólafur fannberg, 16.1.2007 kl. 22:43
Þú hefur semsagt ekki séð þáttinn"dentists from hell"í gær?
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 16.1.2007 kl. 22:56
sá hann og fór til tönnsu strax á eftir.....
Ólafur fannberg, 16.1.2007 kl. 23:07
Maður getur auðvitað ekki bitið á jaxlinn á meðan maður er með fullan munninn af tannlækni...
Sá ekki Dentists From Hell...
GK, 16.1.2007 kl. 23:34
þeir bragðast bara vel þar að segja ef þeir eru ekki með gúmmihanskanna hef prófað hehehehe
Ólafur fannberg, 16.1.2007 kl. 23:49
Þú bítur í jaxlinn á tannlækninum
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 17.1.2007 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.