Færsluflokkur: Dægurmál

Það...

...eru nú margir sem hafa átt eitthvað sökótt við Blönduóslögregluna í gegnum tíðina. Tounge
mbl.is Skotið á bifreið lögreglumanns á Blönduósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Án...

Brunabíll
...þess að hafa kynnt mér nokkuð hvað málið er þá finnst mér ákaflega heimskulegt að brunavarnir séu ekki í lagi hjá Eymundi. Staðnum var lokað í nóvember vegna vanbúinna brunavarna og skömmu áður hafði skólaball verið blásið af á sömu forsendum með litlum fyrirvara. Er þá skynsamlegt að gera bara ekkert í málunum og auglýsa síðan áramótaball? Hvernig væri að lagfæra brunavarnirnar?

Annars er morguninn búinn að vera frekar þreytandi. Dýrleif Nanna vildi ekki fara að sofa fyrr en um fjögurleytið í nótt, eftir stanslausan grát sem líklega hefur stafað af tanntöku. Við fórum allavega upp á spítala í morgun þar sem Maríanna sagði okkur (á ísldönsku) að roðinn væri farinn úr eyrunum og líklega væru þetta bara nýjar tennur. Þurftum að bíða uppi á sjúkrahúsi í rúma tvo tíma og biðum samt örugglega ekki lengst af öllum. Finnst fólki þetta ásættanleg heilbrigðisþjónusta?

Já, ég er frekar grumpy í dag og vona að það lagist því í kvöld eru bæði tipparapartí hjá Árborg og jólapartí hjá Sunnlenska. Ég þarf að vera á báðum stöðum á sama tíma.

Hrós dagsins: Bónus á Selfossi er með stelpur í vinnu við að raða í poka hjá fólki. Troðfull búð, langar raðir og þetta flýtir fyrir. Ég man ekki eftir að hafa séð þetta síðan í Kaupfélagi Árnesinga 1988.


mbl.is Fá ekki leyfi fyrir áramótadansleik í Ölfushöllinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrátt...

 
...fyrir að ég virði algjörlega þá niðurstöðu dómaranna þarna fyrir sunnan þá er ég eitthvað tvístígandi yfir þessari aftöku. Og þá kannski aftökum almennt. Er dauðarefsing endilega málið? Ég er ekki viss um það. Spurning reyndar hvað væri hægt að láta Saddam dunda sér við ef hann yrði ekki hengdur. Kannski gæti hann unnið sem sturtuvörður og sápari í einhverju negrafangelsi.

Var einmitt að velta fyrir mér refsingum hér á landi um daginn. Er ekki bara málið að dæma morðingja, dópsala, nauðgara og kynferðisafbrotamenn í ævilangt fangelsi? Og þá er ég að meina ævilangt... ekki einhver 16 ár sem eru köttuð niður í 8 ef menn hegða sér vel. Setja þessa gaura (og gaurur) í fangelsi til dauðadags með möguleika á reynslulausn sem metin er á 10 ára fresti ef fólk sýnir bót og betrun innan múranna?

Jæja, þetta eru svo sannarlega vangaveltur í anda jólanna. Grin


mbl.is Gengið frá öllum pappírum vegna aftöku Saddams
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg...


Fann...

Björn Daði
...loksins smugu til að fara í klippingu áðan. Mér finnst þjónustulundin hjá rakarafeðgunum á Selfossi algjör snilld. Það er bara klippt og klippt þangað til síðasti maður er kominn út úr húsi. Enda laumaði ég bjórkippu með mér inn til að mýkja kallana aðeins og það hressti þá heldur betur við. Keypti mér síðan diskinn hans Gylfa Gísla á leiðinni út. Fín plata þar á ferðinni en leiðinlegt að maður heyrir hvað Gylfi er orðinn veikur. Röddin er ekki nærri því eins sterk og hún var hér áður fyrr. Ég gleymi því ekki þegar Gylfi söng "Áfram veginn..." í Brúarleikritinu fyrir einhverjum fimmtán árum. Þar var á ferðinni hetjutenór sem sló jafnvel orginalnum Sólon Íslandus við.

Og talandi um Brúarleikritið... Flóð, óttinn við þau hefur eitthvað eitthvað eitthvað. Margir bæir eru umflotnir, Krókur, Bár og Glóra... En kistlinum mínum týndi ég og það fannst mér nú verst. Kannski finnst hann þegar sjatnar... Þetta eru nokkrar eftirminnilegar línur (sem ég man ekki alveg) úr Brúarleikritinu þar sem flóðið 1889 kom mikið við sögu...

Mér fannst reyndar dáldið fúlt að vera "fastur í vinnu" á meðan þetta flóð var. Hefði frekar viljað skoppa um á árbakkanum með myndavél. Þetta er jú stærsta flóð í ánni á minni ævi. Kannski kemur það næsta þegar ég verð afgamall og verð þá einn af þessum "elstu menn muna" í útvarpsviðtali.

Þangað til næst; jólin!


Mér...

...finnst þessi mynd reyndar flottari hjá mér. En ég þyrfti að eiga þrífót og betri linsu. Kannski fæ ég mér svoleiðis í jólagjöf. Verst að ná ekki neinum aksjónmyndum, af sveittum lögreglumönnum að hlaupa á árbakkanum t.d.
mbl.is Enn eitthvað í að vatn flæði inn í hús á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kíktum...

...á ána í nótt. Skemmtilegt að áin bæri eitthvað á sér þó að þetta kallist nú varla alvöru flóð. A.m.k. ekki miðað við flóðið '68 og þaðan af eldri flóð.
mbl.is Rennsli Ölfusár fimm sinnum meira en menn eiga að venjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú...

Steingrímur Hermannsson

...er ég hættur í Framsóknarflokknum. Ég var að rúnta í höfuðborginni um daginn og varð það á að svína bíl á planinu við Hagkaup í Skeifunni. Maður á auðvitað ekki að svína bíla en slysin gerast. Ég steig auðvitað á bremsuna til að forða árekstri þrátt fyrir að vera á nánast engri ferð. Síðan lít ég á bílstjórann í hinum bílnum, brosi og veifa og geri allt til að afsaka mig með handapati. En fýlupokinn í bílnum sem ég svínaði hristi bara hausinn og fussaði og sveijaði. Þegar ég glenni upp augun sé ég að þetta var enginn annar en Steingrímur Hermannsson. Úr því að framsóknarmenn verða svona fúllyndir þegar þeir eru orðnir gamlir þá held ég að það sé best að forða sér úr flokknum sem fyrst. Maður á að brosa í umferðinni.
Reyndar var ég skráður í flokkinn án minnar vitundar og býst við að tóra í honum þangað til ég er búinn að koma Bjarna Harðar í 2. sætið á listanum fyrir næstu kosningar - og síðan inn á þing. En svo er það bara bless bless Framsókn, ég verð að segja það...

Egill...

...var handtekinn í Fjarskanistan um daginn. Þetta olli fjaðrafoki og drengurinn komst í fjölmiðlana hérlendis. Enda ekki á hverjum degi sem Selfyssingur er handtekinn á framandi stað... eða hvað?

Það er minna en ár síðan Egill var handtekinn síðast... Það var í Hveragerði, þar sem hann var að reyna að hjálpa veikum, gömlum manni við að finna Náttúruleysingjahælið... eða ekki. Kannski óhlýðnaðist hann laganna vörðum sem vildu ekki að hann tæki myndir af brennandi flugeldasölu.

Hér er Egill handtekinn í Hveragerði í fyrra. Mun tilþrifaminna en að vera snúinn niður í Fjarskanistan.

Egill handtekinn

Úr...

...því að ég hafði lausa stund þá setti ég upp tónspilara og ætla að henda þar inn einhverjum af þeim lögum sem við erum að gefa út hjá Frost Music fyrir þessi jól. Það þarf auðvitað ekki að segja fólki hvaða plötur á að kaupa í jólapakkann...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband