Hahahahah...

Panty_Hoses_and_Nylon_Socks...alveg snilldar komment frá þessum gaur neðst í fréttinni. Það er útbreiddur misskilningur að Nylon séu eitthvað þekktar í Bretlandi. Ég les mikið af breskum blöðum vikulega og hef aldrei séð minnst á gerviefnabandið frá Íslandi. Ekki alveg satt samt... einhverntíman var platan þeirra auglýst í smáauglýsingunum í Heat eða Now. En Einsi Bé er flinkur plöggari og það er sárasaklaust fyrir Íslendinga að halda að Nylon sé stórt númer erlendis. Kannski síðar... eða ekki.

Annars var ég að spá í þessum umboðsmanni. Ef þetta er gaurinn sem var með henni á FM-verðlaununum þá er hann sláandi líkur Frikka 2000. Sem er skemmtilegt þar sem Ágústa Eva og Frikki eru vinir. Nema þetta hafi bara verið Frikki að plata mig. Held samt ekki.

Annars er bara góð helgi framundan með tærnar upp í loft. Kannski gerist eitthvað skemmtilegt.


mbl.is Silvía Nótt með nýjan umboðsmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta...

...er bara eins og í bíó. Gott að enginn varð alvarlega á vegi þessa manns.
mbl.is Vörubíll stöðvaður eftir ofsaakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alfreð...

...er toppnáungi. Hann er að gera marga skemmtilega hluti með liðið, ekki bara þjálfunarlega, heldur líka í þessum litlu hlutum sem eru svo skemmtilegir...


mbl.is HM: Alfreð valdi sama bílstjórann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirgnæfandi...

Alfred...líkur á því að Alfreð hafi sýnt strákunum myndbandið með Guðmundi í Byrginu. Annars væri þetta ekki svona mikið leyndarmál. Kannski vildi hann sýna þeim hvað þeir ættu að gera við Frakkana...

Nema þetta sé, eins og fyrirsögnin gefur í skyn, heimatilbúið myndband með Alfreð og Ólafi.


mbl.is HM: Myndbandi Alfreðs og Ólafi hrósað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það...

...vita það ekki allir en Fúsi leigði einu sinni í bílskúrnum hjá Bjarna Harðar. Og báðir hafa þeir unnið góða sigra í gær og í dag. Tilviljun?
mbl.is Íslendingar gjörsigruðu Evrópumeistaralið Frakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nennti...

...ekki að lesa þetta alltsaman, enda býst ég ekki við að fá sneið af kökunni. Ef ég ætti milljarð aflögu myndi ég örugglega gera eitthvað svipað. Eða bara kaupa lakkrís.
mbl.is Gefa einn milljarð króna í velgerðarsjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver...

...er þetta eiginlega á myndinni? Og hvað tengist hún fréttinni? Kannski heitir hún Blue Ray...


mbl.is Mun klámið ráða úrslitum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta...

...er líklega það fyndnasta sem ég hef lesið í dag... Grin

...og dagurinn bara rétt að byrja!


mbl.is Íþróttaálfurinn orðinn kyntákn meðal kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhvern...

...veginn hélt ég að það væri ekki hollt að borða á nóttunni. En, jæja.
mbl.is Fær greidd laun fyrir vinnu í matartíma á nóttinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fór...

electric-drill...til tannlæknis í gær. Búinn að fara einu sinni í mánuði síðustu fjóra mánuði. Nóg að gera fyrir tannsann og líklega á ég eftir að fara fleiri ferðir fljótlega... Verð "betri maður" á eftir. Eins og venjulega þá þarf ég nokkra lítra af deyfilyfjum til að sprauta í góminn. Held að það væri líka ráðlegt að staðdeyfa visakortið fyrir svona heimsókn. Það var amk jafn kvíðið og ég fyrir ferðinni.

 


Hef...

...verið frekar latur við að drita yfir helgina. Lofaði samt mömmu að ef ég fengi svona letiköst myndi ég skrifa eitthvað hérna til að sýna lífsmark. Þannig að hér hafiði lífsmörkin hjá mér...

vital_signs_bot_image_blk

Nú...

...er ég frekar slappur í undirheima-slangri en var að velta fyrir mér þar sem kókaín ef oft nefnt kók, hvort það sé til eitthvað sem heitir diet-kók(aín)... eða jafnvel kók-light...

Bara pæling...


mbl.is Grunaðir um að hafa verið undir áhrifum kókaíns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég...

...er ekki viss um að neinn hafi vitað að þau væru týnd.
mbl.is Fornleifafræðingar finna 45.000 ára gömul verkfæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég...

...er búinn að vera að bíða eftir því í allan vetur að vera veðurtepptur. Má samt ekki vera að því á morgun. Lagði bílnum langt úti á vegi því skaflamyndunin hér í Sandvík er alveg rosaleg ef vind hreyfir. Það er amk nóg af lausum snjó núna... Spennó?
mbl.is Veður versnar með kvöldinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KSÍ...

gummgert...er að leita sér að nýjum formanni. Egg-gert er að hætta þar sem hann er orðinn eigandi West Ham og það fer ekki saman við formennskuna í KSÍ. Þar sem ég er að hætta sem formaður Árborgar fór ég að velta því fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að bjóða mig fram til formanns KSÍ. Fínn titill og launin örugglega ekki slæm. En svo fór ég að hugsa að líklega hefði ég ekki útlitið sem þyrfti til að standa undir nafni sem KSÍ formaður.
Eftir ítarlegar rannsóknir á útliti Eggerts og fegurð minni hef ég planað lýtaaðgerð sem ég mun þurfa að undirgangast til að ná kjöri. Myndin hér að ofan er einhver vísir að því hvernig ég mun líta út.
Því meira sem ég horfi á myndina, því óhugnalegri finnst mér hún. Og reyndar finnst mér "ég" dáldið líkur Michael Stipe, söngvara REM.

Hvað finnst þér? Á ég að leggjast undir hnífinn og fara svo í formanninn?


mbl.is Eggert ræddi við Lauren í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband